Fréttir

true

Skaust upp í fyrsta sæti aðsóknarlista með sína fyrstu kvikmynd

-Rætt við leikstjórann og handritshöfundinn Ólöfu Birnu Torfadóttur Kvikmyndin „Hvernig á að vera klassa drusla“ var frumsýnd 5. febrúar á þessu ári en höfundur og leikstjóri myndarinnar er Ólöf Birna Torfadóttir. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til Ólafar á Akranesi og fékk að kynnast henni aðeins betur. Spurð hvaðan hún komi segist Ólöf ekki geta…Lesa meira

true

„Þegar ég hlusta á fallega tónlist er allt svo fallegt“

Segir Valentina Kay tónlistarskólastjóri í Snæfellsbæ Valentina Kay er fædd í Suður Úkraínu og bjó þar sín fyrstu ár. Fimm ára gömul flutti hún með foreldrum sínum og eldri systur norðar í Úkraínu, rétt hjá Kænugarði, þar sem hún ólst upp. Í dag hefur Valentina búið í rúm 19 ár í Ólafsvík þar sem hún…Lesa meira

true

Lifir með Parkinson en segist nú miklu stilltari en áður

Fékk í haust ígrædd rafskaut – DBS tækni heldur einkennum niðri Hér á landi eru að jafnaði 600-800 manns sem haldnir eru sjúkdómi sem kenndur er við enska lækninn James Parkinson sem fyrstur uppgötvaði hann árið 1817. Parkinson er taugahrörnunarsjúkdómur sem hefur áhrif á þær taugafrumur í heilanum sem stjórna hreyfingu. Glíma sjúklingar þá við…Lesa meira

true

„Eftir áramót fer þetta örugglega að verða skrýtið“

Rætt við Sollu í Borgarnesi sem lét af störfum um mánaðamótin Frá fermingaraldri hefur Sólrún Lind Egilsdóttir frá Borgarnesi unnið ýmis störf. Fyrst í unglingavinnunni í Borgarnesi, svo Sláturhúsinu í Brákarey, Hótel Borgarnesi, á Goðafossi, Mjólkursamlaginu og í Brákarhlíð. Nýliðin mánaðamót mörkuðu ákveðin kaflaskipti í lífi Sollu eins og hún er kölluð alla jafnan, og…Lesa meira

true

Órofa samstaða um uppbyggingu samfélagsmiðstöðvar á Akranesi

Bæjarstjórn Akraness hefur náð órofa samstöðu um að samfélagsmiðstöð verði byggð upp á Dalbraut 8. Eins og kunnugt er varð húsnæði Fjöliðjunnar að Dalbraut 8 eldsvoða að bráð að kvöldi 7. maí 2019. Nokkur kurr hefur staðið um uppbyggingu hússins og sitt sýnst hverjum. Uppi voru meðal annars hugmyndir um að byggja nýtt húsnæði fyrir…Lesa meira

true

„Ég vona að ég hafi gert eitthvað gagn“

Ólafur Sveinsson er atvinnuráðgjafi hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og hefur verið viðloðandi samtökin beint og óbeint í 40 ár. Flestir, sem unnið hafa að sveitarstjórnarmálum í landshlutanum eða hafa verið í rekstri eða samskiptum við SSV, hafa vafalaust haft einhver kynni af Ólafi, oftast í tengslum við ráðgjöf og þróun einstakra atvinnu- og nýsköpunarverkefna.…Lesa meira

true

Hefur skoðað hátt í fjögur þúsund jarðir

Rætt við Magnús Leópoldsson um jarðasölur, gæsluvarðhald að ósekju og tilveruna Fáir, ef nokkrir, hafa jafn mikla þekkingu á jörðum á Íslandi og Magnús Leópoldsson löggiltur fasteignasali. Meðfram almennri sölu fasteigna í fyrirtæki sínu, Fasteignamiðstöðinni, hefur hann sérhæft sig í jarðasölu og skoðað meirihluta bújarða á landinu. Við það nýtur hann þekkingar sinnar og reynslu…Lesa meira

true

Óska eftir tillögum um Jólahús Snæfellsbæjar

Menningarnefnd Snæfellsbæjar óskar eftir tillögum frá íbúum um jólahús Snæfellsbæjar 2021 en frá þessu segir á vefsíðu Snæfellsbæjar. Hægt er að senda tillögur í gegnum hlekk til og með 20. desember 2021 á vefslóðinni snb.is. Að þeim tíma loknum fer menningarnefnd bæjarins yfir niðurstöður og verða sigurvegarar kynntir á vefsíðunni þann 22. desember. Greint er…Lesa meira

true

Kátir jólasveinar frá Elkem

Það var kátt á hjalla hjá þessum jólasveinum sem blaðamaður Skessuhorns rakst á í dag. Þetta reyndust vera forstjóri Elkem á Íslandi, Álfheiður Ágústsdóttir, og nokkrir starfsmenn Elkem sem voru í óðaönn að útdeila jólagjöfum til starfsmanna fyrirtækisins í dag. Ekki fór á milli mála að þar á bæ er fólk komið í mikið jólaskap.Lesa meira

true

Hangikjötsveisla á sundlaugarbakkanum í Borgarnesi

Það var kátt hjá vatnsleikfimigörpum í sundlauginni í Borgarnesi í síðustu viku þegar Íris Grönfeldt, íþróttafræðingur og vatnsleikfimisleiðbeinandi, mætti með hangikjöt á sundlaugarbakkann að loknum leikfimitímanum. Um er að ræða jólahefð til tveggja áratuga. „Þetta byrjaði í kringum 2001 þegar af einhverjum ástæðum mér dettur í hug að koma með smakk af hálfu hangikjötslæri fyrir…Lesa meira