Kátir karlar í hangikjötsveislu. Ljósm. glh.

Hangikjötsveisla á sundlaugarbakkanum í Borgarnesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það var kátt hjá vatnsleikfimigörpum í sundlauginni í Borgarnesi í síðustu viku þegar Íris Grönfeldt, íþróttafræðingur og vatnsleikfimisleiðbeinandi, mætti með hangikjöt á sundlaugarbakkann að loknum leikfimitímanum. Um er að ræða jólahefð til tveggja áratuga. „Þetta byrjaði í kringum 2001 þegar af einhverjum ástæðum mér dettur í hug að koma með smakk af hálfu hangikjötslæri fyrir fólkið í vatnsleikfiminni og ég fer með fyrsta hangikjötið frá Brekku niður í íþróttahús,“ rifjar Íris Gönfeldt upp. „Hangikjötið er heimareykt af Þórhildi og Elvari á Brekku en þar er löng hefð fyrir að reykja sitt eigið kjöt. Þau tóku við keflinu af foreldrum Þórhildar, þeim Önnu og Þorsteini, og hafa haldið hefðinni á lofti. Þetta er náttúrulega allt annað en það sem þú færð út í búð. Þetta er alvöru hangikjöt hjá þeim Elvari og Þórhildi,“ bætir Íris stolt við. „Af því ég fékk alltaf fyrsta hangikjötið úr framleiðslunni hjá þeim, þá átti ég alltaf að láta þau Elvar og Þórhildi vita hvernig smakkaðist, og hvort kjötið væri ekki alveg rautt í gegn.“\r\n\r\nNánar má lesa um þetta í jólablaði Skessuhorns sem kom út í morgun.",
  "innerBlocks": []
}
Hangikjötsveisla á sundlaugarbakkanum í Borgarnesi - Skessuhorn