Órofa samstaða um uppbyggingu samfélagsmiðstöðvar á Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bæjarstjórn Akraness hefur náð órofa samstöðu um að samfélagsmiðstöð verði byggð upp á Dalbraut 8. Eins og kunnugt er varð húsnæði Fjöliðjunnar að Dalbraut 8 eldsvoða að bráð að kvöldi 7. maí 2019. Nokkur kurr hefur staðið um uppbyggingu hússins og sitt sýnst hverjum. Uppi voru meðal annars hugmyndir um að byggja nýtt húsnæði fyrir Fjöliðjuna á svokölluðum Orkuveitureit að Dalbraut 6.\r\n\r\nÁ fundi bæjarstjórnar 14. desember sl. var lögð fram bókun þar sem bæjarstjórn Akraness lýsir yfir ánægju sinni með þá órofa samstöðu sem náðst hefur meðal kjörinna fulltrúa um uppbyggingu samfélagsmiðstöðvar í nýju húsnæði að Dalbraut 8. Samfélagsmiðstöðin mun hýsa starfsemi Fjöliðjunnar, Endurhæfingarhússins HVER ásamt Félagsmiðstöðinni Þorpinu, frístundastarfi fyrir börn og ungmenni.\r\n\r\nFram kemur í fundargerð að ákvörðunin byggi á hugmyndafræði um samfélag án aðgreiningar og ítarlegri sviðsmyndagreiningu allra fagsviða Akaneskaupstaðar. Hið nýja húsnæði að Dalbraut 8 verður á stórri og skemmtilegri lóð í hjarta bæjarins og mun uppfylla núverandi- og framtíðarþörf á húsnæði fyrir starfsemina ásamt því að bjóða upp á aukinn sveigjanleika til að takast á við ný verkefni og áskoranir í vaxandi bæjarfélagi.\r\n<h4>Tækifæri verða til bættrar þjónustu ásamt hraðari uppbyggingu</h4>\r\nMeð samfélagsmiðstöð gefst tækifæri til að sameina í einu húsi þá starfsemi sem í dag dreifist á marga staði. Það skapar tækifæri til aukins þekkingarflæðis milli starfsmanna og starfsstöðva sem án efa mun skila sér í bættri þjónustu fyrir alla hópa. Samhliða samfélagsmiðstöð er hægt að byggja upp þjónustu og tækifæri til frístundastarfs fyrir hinn almenna borgara. Byggja upp miðstöð sem endurspeglar og fangar margbreytileikanum í samfélaginu, starfar í anda samfélags án aðgreiningar í víðum skilningi og eykur möguleika íbúa á fjölbreytni í tengslamyndun og samfélagslegri þátttöku.\r\n\r\nÁkvörðun um uppbyggingu á samfélagsmiðstöð gerir ráð fyrir að hægt verði að hefja þar starfsemi árið 2024 sem gefur tækifæri til að flýta um mörg ár áformum um uppbyggingu á aðstöðu fyrir frístundastarf barna og ungmenna og starfsemi Endurhæfingarhússins HVER en fyrirsjáanlegt er að uppbyggingu á húsnæði fyrir starfsemi Fjöliðjunnar mun seinka um eitt ár. Unnið er að því hörðum höndum að finna hæfingarhluta fjöliðjunnar hentugan stað þar til húsnæðið á Dalbraut 8 verður tilbúið.\r\n<h4>Fjárhagslegur ávinningur til lengri tíma.</h4>\r\nUppbygging samfélagsmiðstöðvar á Dalbraut 8 mun hafa í för með sér aukna fjárfestingu Akraneskaupstaðar til skemmri tíma en ef horft er til lengri tíma mun þessi uppbygging verða fjárhagslega hagkvæmari en aðrir valkostir sem skoðaðir voru. Bæjarstjórn Akraness leggur mikla áherslu á að uppbygging samfélagsmiðstöðvar verði í forgangi á næstu árum. Gert er ráð fyrir verkefninu í fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar 2022-2025 og þegar er hafin vinna við breytingar á skipulagi Dalbrautarreits til samræmis við uppbyggingaráform.\r\n\r\n<a href=\"https://ibuagatt.akranes.is/meetingsearch/displaydocument.aspx?itemid=PltB8TE85EesslUQ9AIawA1&meetingid=sQ5kb4PCP0qRGZ6mM8OjHA1&filename=B%C3%B3kun%20b%C 3%A6jarstj%C3%B3rnar%20vegna%20samf%C3%A9lagsmi%C3%B0st%C3%B6%C3%B0var-14122021.docx&cc=Document\">Bókun bæjarstjórnar vegna samfélagsmiðstöðvar.</a>",
"innerBlocks": []
}
Órofa samstaða um uppbyggingu samfélagsmiðstöðvar á Akranesi - Skessuhorn