Valentina Kay

„Þegar ég hlusta á fallega tónlist er allt svo fallegt“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<h4>Segir Valentina Kay tónlistarskólastjóri í Snæfellsbæ</h4>\r\nValentina Kay er fædd í Suður Úkraínu og bjó þar sín fyrstu ár. Fimm ára gömul flutti hún með foreldrum sínum og eldri systur norðar í Úkraínu, rétt hjá Kænugarði, þar sem hún ólst upp. Í dag hefur Valentina búið í rúm 19 ár í Ólafsvík þar sem hún er skólastjóri Tónlistarskóla Snæfellsbæjar. Í Úkraínu gekk Valentina í tónlistarskóla þar sem hún lærði á takkaharmónikku og píanó. Hún lauk grunnstigsprófi og miðstigsprófi samhliða grunnskólanámi en vildi læra enn meira og 18 ára gömul flutti hún því enn norðar, til Hvíta-Rússlands til að fara í tónlistarmenntaskóla. Eftir útskrift hélt hún lengra norður og fór í háskóla í Karélia í norðurhluta Rússlands. Þar bjó hún í Petrozavodsk borg og kláraði bæði bakkalár og masterspróf í tónlist. „Eftir háskólanámið fór ég enn og aftur aðeins norðar og flutti hingað til Ólafsvíkur,“ segir Valentina og hlær. „Ég elska Norðurlöndin og langaði alltaf að koma hingað. Ég hef aldrei viljað fara suður og sitja undir sólinni, þá líður mér bara illa,“ segir Valentina. „En eftir næstum tuttugu ár á Íslandi þykir mér samt gott að komast í sólina í smá stund í einu,“ bætir hún við og hlær.\r\n\r\nRætt er við Valentinu Kay í jólablaði Skessuhorns.",
  "innerBlocks": []
}
„Þegar ég hlusta á fallega tónlist er allt svo fallegt“ - Skessuhorn