Ólöf Birna Torfadóttir.

Skaust upp í fyrsta sæti aðsóknarlista með sína fyrstu kvikmynd

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<h4>-Rætt við leikstjórann og handritshöfundinn Ólöfu Birnu Torfadóttur</h4>\r\nKvikmyndin „Hvernig á að vera klassa drusla“ var frumsýnd 5. febrúar á þessu ári en höfundur og leikstjóri myndarinnar er Ólöf Birna Torfadóttir. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til Ólafar á Akranesi og fékk að kynnast henni aðeins betur. Spurð hvaðan hún komi segist Ólöf ekki geta nefnt neinn einn stað sem „heima“ í hennar huga. „Ég á ættir að rekja á Vestfirði og á Drangsnes. Svo er ég líka eitthvað ættuð frá Keflavík. En þegar ég var að alast upp fluttum við mikið og ég gekk í sjö grunnskóla um allt land. Ég á því ekki neinn einn stað sem ég get sagt að ég komi frá,“ svarar Ólöf. Hún flutti með kærastanum sínum, Orra Ingólfssyni, og tólf ára dóttur á Akranes árið 2017 og líkar þeim mjög vel við að búa þar. „Besta vinkona mín, sem er líka handritshöfundur og leikstjóri, býr hér á Akranesi og hún var mikið aðdráttarafl fyrir okkur. Við erum bara rosalega ánægð hér og vorum að kaupa okkur íbúð og erum ekki að fara neitt strax,“ segir Ólöf og brosir.\r\n\r\nRætt er við Ólöfu Birnu Torfadóttur í jólablaði Skessuhorns.",
  "innerBlocks": []
}
Skaust upp í fyrsta sæti aðsóknarlista með sína fyrstu kvikmynd - Skessuhorn