Sólrún Lind Egilsdóttir, eða Solla eins og hún er kölluð. Ljósm. glh.

„Eftir áramót fer þetta örugglega að verða skrýtið“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<h4>Rætt við Sollu í Borgarnesi sem lét af störfum um mánaðamótin</h4>\r\nFrá fermingaraldri hefur Sólrún Lind Egilsdóttir frá Borgarnesi unnið ýmis störf. Fyrst í unglingavinnunni í Borgarnesi, svo Sláturhúsinu í Brákarey, Hótel Borgarnesi, á Goðafossi, Mjólkursamlaginu og í Brákarhlíð. Nýliðin mánaðamót mörkuðu ákveðin kaflaskipti í lífi Sollu eins og hún er kölluð alla jafnan, og hefur Solla nú lagt vinnuskóna á hilluna. „Líklega verður tilfinningin fyrst um sinn eins og maður sé kominn í sumarfrí,“ segir Solla um það að vera komin á eftirlaun.\r\n<h4>Byrjaði 14 ára að vinna</h4>\r\nSolla var 14 ára þegar hún fyrst byrjaði að fá laun fyrir vinnuna sína, þá nýfermd. „Ég byrjaði í unglingavinnunni uppi í Einkunnum að planta trjám þar. Þá voru Einkunnir langt í burtu frá Borgarnesi. Við krakkarnir fórum með vörubíl frá Kaupfélaginu og stóðum öll aftan á, á leiðinni upp eftir,“ rifjar Solla upp. „Þetta var mjög skemmtileg vinna og allir tóku nesti með sér til að hafa eitthvað til að snæða yfir vinnudaginn. Það var yfirleitt lagt af stað upp úr klukkan níu á morgnana og komið heim milli þrjú og fjögur síðdegis. Hjörtur Helgason var vaktstjórinn á þessum tíma og sagði okkur krökkunum fyrir verkum. Við vorum ýmist að planta eða klippa tré,“ bætir hún við. Landslagið í Einkunnum á þessum tíma var töluvert frábrugðið því sem Borgnesingar og aðrir gestir fólksvangsins þekkja í dag, en þarna var mikið mýrlendi áður en ráðist var í heljarinnar gróðursetningarátak á árunum 1954 til 1989 og ákveðið að helga trjárækt ákveðnu svæði í Einkunnum. „Ég kannast við sum trén þarna,“ segir Solla kímin, sem fer oft í göngutúr um Einkunnir.\r\n\r\nNánar er rætt við Sólrúnu Lind Egilsdóttur í jólablaði Skessuhorns.",
  "innerBlocks": []
}
„Eftir áramót fer þetta örugglega að verða skrýtið“ - Skessuhorn