Fréttir

true

Kristín kraftlyftingakona ársins 2021

Borgfirðingurinn Kristín Þórhallsdóttir og Akureyringurinn Viktor Samúelsson eru kraftlyftingakona- og karl ársins 2021. Það var ákveðið á stjórnarfundi Kraftlyftingasambands Íslands sem fram fór sunnudaginn 14. desember síðastliðinn. Kristín, sem er íþróttamaður Akraness árið 2020, kemur því til greina í valinu á íþróttamanni ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna í lok þessa árs. Kristín er fædd árið 1984…Lesa meira

true

Segir það gott að vera eldri borgari í Snæfellsbæ

Guðrún Tryggvadóttir fæddist á Arnarstapa í ársbyrjun 1940 og var önnur í röð fimm systkina, dóttir Tryggva Jónssonar og Sigríðar Salbjargar Guðmundsdóttur. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til Guðrúnar á heimili hennar í Ólafsvík og ræddi við hana um lífið, fjölskylduna, starf eldri borgara og fleira. Við fáum okkur sæti í notalegu eldhúsi á annarri…Lesa meira

true

ÍA semur við Árna Marinó

Knattspyrnufélag ÍA hefur náð samkomulagi við markmanninn Árna Marinó Einarsson um nýjan samning við félagið. Gildir hann til tveggja ára eða til loka tímabilsins árið 2023. Árni Marinó sem er 19 ára gamall lék 13 leiki í Pepsi Max deildinni síðasta sumar og var valinn besti ungi leikmaður meistaraflokks á lokahófi ÍA eftir tímabilið.Lesa meira

true

Stolt af því að hafa kynnst öllu þessu fólki

Eftir að hafa alið allan sinn aldur í Árneshreppi eru Gunnsteinn og Margrét nú flutt á Akranes Gunnsteinn Gíslason og Margrét Jónsdóttir kynntust ung, enda bæði fædd og uppalin í Árneshreppi á Ströndum. Hann árið 1932 og hún sjö árum síðar, 1939. Þau lifðu og hrærðust þar norður frá áratugum saman, gegndu mikilvægu hlutverki í…Lesa meira

true

Einar, Flosi og Gunnar Sturla sungu Nú eru jól

Sextándi gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Það voru þeir Einar Viðarsson, Flosi Einarsson og Gunnar Sturla Hervarsson sem opnuðu gluggann með laginu Nú eru jól. Lagið er eftir Gunnar Sturlu og textann sömdu þeir saman. Með þeim félögum syngur Elfa Margrét Ingvadóttir. Flosi gerði garðinn frægan hér áður fyrr…Lesa meira

true

Forvitnast um ólíka jólasiði og jólaminningar

Sinn er siður í landi hverju og það á sannarlega við um jólin. Þeir eru fjölbreyttir jólasiðirnir en byggja flest allir á sama grunni; að njóta jólanna og alls þess góða sem þau hafa upp á að bjóða. Við báðum þrjá einstaklinga að segja okkur aðeins frá jólahefðum í sínu landi. Þau eru: Sigríður Aðalsteinsdóttir,…Lesa meira

true

Lyflækningadeild HVE opnar eftir breytingar

Í morgun var verið að leggja lokahönd á framkvæmdir við endurnýjun A deildar, lyflækningadeildar, á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Undanfarna sex mánuði hafa iðnaðarmenn verið að störfum, allt verið hreinsað út og endurnýjað, innréttingar gólfefni, milliveggir og fleira. Í dag koma svo fyrstu sjúklingarnir og leggjast inn á deildina. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í morgun í…Lesa meira

true

Skaust upp í fyrsta sæti aðsóknarlista með sína fyrstu kvikmynd

-Rætt við leikstjórann og handritshöfundinn Ólöfu Birnu Torfadóttur Kvikmyndin „Hvernig á að vera klassa drusla“ var frumsýnd 5. febrúar á þessu ári en höfundur og leikstjóri myndarinnar er Ólöf Birna Torfadóttir. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn til Ólafar á Akranesi og fékk að kynnast henni aðeins betur. Spurð hvaðan hún komi segist Ólöf ekki geta…Lesa meira

true

„Þegar ég hlusta á fallega tónlist er allt svo fallegt“

Segir Valentina Kay tónlistarskólastjóri í Snæfellsbæ Valentina Kay er fædd í Suður Úkraínu og bjó þar sín fyrstu ár. Fimm ára gömul flutti hún með foreldrum sínum og eldri systur norðar í Úkraínu, rétt hjá Kænugarði, þar sem hún ólst upp. Í dag hefur Valentina búið í rúm 19 ár í Ólafsvík þar sem hún…Lesa meira

true

Lifir með Parkinson en segist nú miklu stilltari en áður

Fékk í haust ígrædd rafskaut – DBS tækni heldur einkennum niðri Hér á landi eru að jafnaði 600-800 manns sem haldnir eru sjúkdómi sem kenndur er við enska lækninn James Parkinson sem fyrstur uppgötvaði hann árið 1817. Parkinson er taugahrörnunarsjúkdómur sem hefur áhrif á þær taugafrumur í heilanum sem stjórna hreyfingu. Glíma sjúklingar þá við…Lesa meira