Kristín Þórhallsdóttir er kraftlyftingakona ársins. Ljósm. af vefsíðu kraft.is

Kristín kraftlyftingakona ársins 2021

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Borgfirðingurinn Kristín Þórhallsdóttir og Akureyringurinn Viktor Samúelsson eru kraftlyftingakona- og karl ársins 2021. Það var ákveðið á stjórnarfundi Kraftlyftingasambands Íslands sem fram fór sunnudaginn 14. desember síðastliðinn. Kristín, sem er íþróttamaður Akraness árið 2020, kemur því til greina í valinu á íþróttamanni ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna í lok þessa árs. Kristín er fædd árið 1984 og keppir í klassískum kraftlyftingum í mínus 84 kg flokki undir merkjum Kraftlyftingafélags Akraness.\r\n\r\nKristín varð um síðustu helgi Evrópumeistari í klassískum kraftlyftingum í samanlögðu og setti í leiðinni nýtt Evrópumet. Hún er stigahæsti kraftlyftingamaður Íslands á árinu með 106 stig og er önnur á heimslista í sínum flokki. Hún vann til bronsverðlauna á HM í október og fékk brons í hnébeygju. Á EM vann hún gull í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu auk þess sem hún er Íslandsmeistari og hefur bætt öll íslandsmet á árinu.\r\n\r\nÞetta er í fyrsta skipti sem Kristín hlýtur þennan heiður en Viktor var einnig valinn kraftlyftingakarl ársins 2015.",
  "innerBlocks": []
}
Kristín kraftlyftingakona ársins 2021 - Skessuhorn