Valdís og Stefán eru hæstánægð með nýju aðstöðuna. Ljósm. vaks

Lyflækningadeild HVE opnar eftir breytingar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í morgun var verið að leggja lokahönd á framkvæmdir við endurnýjun A deildar, lyflækningadeildar, á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Undanfarna sex mánuði hafa iðnaðarmenn verið að störfum, allt verið hreinsað út og endurnýjað, innréttingar gólfefni, milliveggir og fleira. Í dag koma svo fyrstu sjúklingarnir og leggjast inn á deildina. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í morgun í heimsókn á lyflækningadeildina sem er á þriðju hæð og hitti þar að máli þau Stefán Þorvaldsson yfirlækni og Valdísi Heiðarsdóttur hjúkrunardeildarstjóra. Þau segja að endurbæturnar hafi löngu verið tímabærar en lyflækningadeildin var opnuð 1. febrúar árið 1977 og í grunninn verið óbreytt síðan. Búið er að breyta herbergjaskipan, nú eru fleiri eins manns herbergi í staðinn fyrir tveggja manna á kostnað fjölda sjúklinga en deildin hefur minnkað með þessum breytingum. Hins vegar er aðstaðan orðin miklu betri, allt miklu bjartara en allir veggir voru frekar í gamaldags appelsínugulum og dökkgrænum litum.\r\n\r\nEn hvað er helst verið að fást við á lyflækningadeildinni? „Það eru blönduð vandamál, lyflækningar svokallaðar. Hjartavandamál, meltingarvandamál, sýkingar, taugaheilablóðföll. Í raun allt sem ekki tilheyrir skurðlækningum og einnig almenn veikindi eldra fólks með fjölþætt vandamál.“ segir Stefán. „Þá er betri aðstaða nú til að einangra fólk með smitandi sjúkdóma. Við erum með lokuð herbergi þar sem hægt er að hafa yfir og undir þrýsting á loftinu og þá er minni hætta á að það smitist út á deildina.“\r\n\r\nNýlega fengu þau að gjöf frá Lionsklúbbi Akraness sem ráðstafað verður til kaupa á svokölluðum vökturum sem er búnaður til að fylgjast með heilsu og líðan sjúklinga, hjartslætti, lífsmörkum og hjartalínuriti. Valdís segir að lokum að það sé alltaf ánægjulegt að fá þess konar gjafir því alltaf vanti peninga fyrir tækjum og nefnir einnig að núna sé nóg pláss fyrir myndir á veggi og þá eru hægindastólar eða Lazyboy stólar alltaf góð gjöf fyrir sjúklinga.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-49700\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/12/Lyflaekningadeild-HVE-opnar-eftir-breytingar2-600x450.jpg\" alt=\"\" />",
  "innerBlocks": []
}
Lyflækningadeild HVE opnar eftir breytingar - Skessuhorn