Hjónin Gunnsteinn Gíslason og Margrét Jónsdóttir.

Stolt af því að hafa kynnst öllu þessu fólki

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<h4>Eftir að hafa alið allan sinn aldur í Árneshreppi eru Gunnsteinn og Margrét nú flutt á Akranes</h4>\r\nGunnsteinn Gíslason og Margrét Jónsdóttir kynntust ung, enda bæði fædd og uppalin í Árneshreppi á Ströndum. Hann árið 1932 og hún sjö árum síðar, 1939. Þau lifðu og hrærðust þar norður frá áratugum saman, gegndu mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Samfélagi sem þau sáu gjörbreytast og dragast saman. Í haust fluttu þau inn í íbúð á Akranesi. Þau eiga enn eignir og innbú í Norðurfirði en ákváðu að dvelja ekki þar í vetur. Óhætt er að segja að þau hafi lifað tímana tvenna.  „Við vorum fædd hvort á sínum bænum í sveitinni. Byrjuðum síðan að búa þarna um 1960, þá vorum við búin að rotta okkur saman,“ segir Gunnsteinn og brosir skelmislega. Hann er frá Sveinstúni og hún Stóru-Ávík. Þó Árneshreppur sé nokkuð afskekktur þá var heimssagan ekki fjarri í barnæsku þeirra, enda skall á með heimsstyrjöld fæðingarár Margrétar. Það litar bernskuminningarnar. Gunnsteinn man upphafið, enda var hann þá orðinn sjö ára gamall.\r\n\r\nRætt er við hjónin Gunnstein og Margréti í jólablaði Skessuhorns.",
  "innerBlocks": []
}
Stolt af því að hafa kynnst öllu þessu fólki - Skessuhorn