{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sextándi gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Það voru þeir Einar Viðarsson, Flosi Einarsson og Gunnar Sturla Hervarsson sem opnuðu gluggann með laginu Nú eru jól. Lagið er eftir Gunnar Sturlu og textann sömdu þeir saman. Með þeim félögum syngur Elfa Margrét Ingvadóttir.\r\n\r\nFlosi gerði garðinn frægan hér áður fyrr með hljómsveitinni Tíbrá og þeir Einar og Gunnar Sturla með Abbababb. Þeir félagar hafa unnið lengi saman og meðal annars samið saman sjö eða átta söngleiki. Þar sem þeir syngja ekki mikið fyrir framan fólk völdu þeir frumsamið lag. Þá veit enginn hvernig það á að vera.\r\n\r\n<a href=\"https://fb.watch/9ZxSUgAsxp/\">Hlekkur á lagið.</a>",
"innerBlocks": []
}
Einar, Flosi og Gunnar Sturla sungu Nú eru jól - Skessuhorn