Fréttir

true

Fyrsta hraðhleðslustöðin komin í upp í Stykkishólmi

Stykkishólmsbær gerði nýverið samning við Ísorku um að reisa fyrstu hraðhleðslustöðina í bænum og er hún nú komin upp á planinu við íþróttamiðstöðina. Stöðin er 150kw og er þannig gerð að hægt er að leggja beggja vegna við hana og hlaða tvo bíla í einu. Þá hefur verið gert ráð fyrir tveimur stöðvum til viðbótar…Lesa meira

true

Rörasteypu hætt á næsta ári í Borgarnesi

Steypustöðin í Borgarnesi hefur með bréfi til viðskiptavina sinna tilkynnt að á næsta ári verði hætt framleiðslu og sölu á steinrörum og brunnum hjá fyrirtækinu. Í bréfinu, sem Lárus Elíasson framkvæmdastjóri Steypustöðvarinnar í Borgarnesi ritar, segir að sökum breyttra markaðsaðstæðna hafi fyrirtækið ákveðið að hætta framleiðslu steinröra og brunna á árinu 2022. Markaður fyrir þessa…Lesa meira

true

Lionsmenn leigja út ljósakrossa á Akranesi

Að venju verður Lionsklúbbur Akraness með útleigu á ljósakrossum í kirkjugarðinum í Görðum á Akranesi nú í byrjun aðventunnar. Afgreiðslutímar að þessu sinni verða laugardaginn 27. nóvember frá klukkan 11.00. til 15.30, sunnudaginn 28. nóvember frá kl. 13.00. – 15.30. og laugardaginn 4. desember frá kl. 13.00. – 15.30. Lionsklúbbur Akraness hefur frá árinu 1958…Lesa meira

true

Áforma að reisa tvo vindmyllugarða á Vesturlandi

Franska fyrirtækið Qair Iceland ehf. áformar að reisa tvo vindmyllugarða á Vesturlandi en fyrirtækið er dótturfyrirtæki franska fyrirtækisins Qair Group. Qair hét áður Quadran Iceland Development ehf. og var stofnað 2018 samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra. Fyrirtækið Qair Group er óháður framleiðandi endurnýjanlegrar orku víða um heim. Sá garður sem lengra er kominn er áformaður í…Lesa meira

true

Minntust látinna í umferðinni

Í dag er alþjóðlegur minningardagur þeirra sem látist hafa í umferðarslysum. Þess er víða minnst hér á landi með minningarstundum. Í ár er kastljósinu meðal annars beint að afleiðingum þess ef öryggisbelti eru ekki notuð. Frá því að fyrsta banaslysið var skráð hér á landi 25. ágúst 1915 hafa 1592 látist í umferðinni á Íslandi.…Lesa meira

true

Ný smit hafa áhrif á skólastarf í Grundarfirði

Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri í Grundarfirði skrifaði í gær tilkynningu á FB síðu bæjarins um að nú hafi verið staðfest fjögur ný Covid-smit í bæjarfélaginu. „Áhrifin ná inn á leikskólann okkar, þar sem starfsmaður hefur greinst smitaður. Nú tekur við sambærilegt ferli og í síðustu viku. Þau börn sem voru í leikskólanum á fimmtudag og/eða föstudag…Lesa meira

true

Annir hjá björgunarsveitum

Þó nokkuð hefur verið um útköll hjá björgunarsveitum landsins um helgina. Í morgun voru björgunarsveitir á Vesturlandi kallaðar út til leitar að manni sem var villtur. Tveimur tímum síðar voru björgunarsveitir kallaðar heim, eftir að maðurinn hafði fundist heill á húfi. Í þremur tilfellum voru sveitirnar kallaðar út í gær vegna fólks sem slasast hafði…Lesa meira

true

Tvær Evur árituðu bækur sínar

Nýjar bækur eru nú að hellast inn á jólamarkaðinn eins og glöggt má sjá í bókaverslunum. Síðdegis í gær voru tveir höfundar staddir í Pennanum á Akranesi og árituðu fyrir gesti bækur sínar. Þetta voru þær Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, sem skrifaði bókina Bakað með Evu, og síðan Eva Björg Ægisdóttir sem sendir frá sér…Lesa meira

true

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa á sunnudaginn

Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn hér á landi sunnudaginn. Í ár verður kastljósinu meðal annars beint að afleiðingum þess ef öryggisbelti eru ekki notuð. Táknrænar minningarstundir verða haldnar hringinn í kringum landið af þessu tilefni. Dagskrá viðburða er á vefnum minningardagur.is. Minningarathöfn verður haldin við Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð í Reykjavík kl. 14:00.…Lesa meira

true

Hrútaskráin komin út

Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna er jafnan eitt mest lesna rit ársins víða um land. Skráin er nú komin út á rafrænu formi en prentaða útgáfan er væntanleg í næstu viku. „Að þessu sinni standa 48 úrvalshrútar til boða í komandi sæðingavertíð en útsending sæðis mun hefjast þann 1. desember nk. og standa til 21. desember nk. Af…Lesa meira