Fréttir

true

UPPFÆRÐ FRÉTT um Tæknimessu í FVA

Uppfært: Skjótt skipast veður í lofti: Eftir að ljóst varð að nýr kórónaveirufaraldur er nú hafinn á Akranesi hefur Tæknimessu í FVA verið frestað um óákveðinn tíma. Upphafleg frétt: Tæknimessa verður haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í fjórða sinn á morgun, fimmtudag. Þá er nemendum í 8.-10. bekk af öllu Vesturlandi boðið í heimsókn…Lesa meira

true

Verður með Skagamönnum í anda á Vökudögum

Skagamaðurinn Smári Hrafn Jónsson hefur um árabil búið á Spáni. Föstudaginn 5. nóvember næstkomandi mun hann opna myndlistarsýningu í hinum aldagamla listamannabæ Altea á Spáni. Segist hann þannig ætla að verða með Skagamönnum í anda þegar Vökudagar fara fram. Í samtali við Skessuhorns segir Smári að upphaflega hafi staðið til hjá honum að opna sýninguna…Lesa meira

true

Leynir óskar eftir nýjum rekstraraðila á Garðavöllum

Golfklúbburinn Leynir hefur auglýst eftir nýjum veitingaaðila í frístundamiðstöðinni Garðavöllum á Akranesi. Hilmar Ólafsson framkvæmdastjóri Galito Bistro, sem hefur verið með veitingareksturinn frá víslu hússins 2019, hefur sagt upp samningnum. Í frétt klúbbsins segir að um sé að ræða framúrskarandi aðstöðu fyrir veislur og viðburði ásamt fullbúnu eldhúsi með tækjum og leirtaui. Mikil sóknarfæri fyrir…Lesa meira

true

Mæðrastyrksnefnd Akraness undirbýr úthlutanir

Nú er farið að styttast í jól og Mæðrastyrksnefnd Akraness undirbýr úthlutanir fram að hátíðum. Nefndin var á hrakhólum með húsnæði en nú er orðið ljóst að aðstaða hennar verður á sama stað og í fyrra, í húsinu sem flestir Akurnesingar þekkja sem HB-húsið en í dag hefur Breið þróunarsetur aðstöðu í húsinu. Gengið er…Lesa meira

true

Covid tölur fara lækkandi á Vesturlandi

Í morgun birti lögreglan á Vesturlandi nýjar tölur yfir Covid-19 í umdæminu. Óhætt er að segja að tölurnar yfir einstaklinga í sóttkví hafi lækkað verulega frá því á föstudag. Fjöldi einstaklinga í einangrun fer einnig lækkandi þó lækkunin sé minni. Í sóttkví eru nú 51 samanborið við 96 og í einangrun eru 46 miðað við…Lesa meira

true

Loðnan skilar auknum verðmætum

Á fyrstu níu mánuðum ársins er útflutningsverðmæti sjávarafurða komið í rúma 213 milljarða króna. Það er rúmlega 8% aukning í krónum talið miðað við sama tímabil í fyrra. Gengi krónunnar hefur að jafnaði verið um 2% sterkara fyrstu níu mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra og er aukningin þar með aðeins meiri í…Lesa meira

true

Bjarki Fannar er á leið í opna hjartaaðgerð í Boston

Bjarki Fannar Hjaltason er 14 ára drengur á Akranesi, sonur Hjalta Arnar Jónssonar og Myrru Gísladóttur. Bjarki er næst elstur fimm systkina. Fjölskyldan er síðar í þessum mánuði á leið til Boston þar sem Bjarki fer í opna hjartaaðgerð 6. desember nk. Fer fjölskyldan saman út 29. nóvember og þarf að dvelja þar til 3.…Lesa meira

true

Nýr dýralæknir tekinn til starfa í Búðardal

Daníel Haraldsson er nýr dýralæknir sem sinnir dýralæknaþjónustu á Ströndum, Reykhólahreppi og í Dalabyggð. Frá þessu segir á vef Reykhólahrepps, en Daníel tók við 1. október síðastliðinn og tekur við af Gísla Sverri Halldórssyni sem sinnt hefur embættinu frá 2012. Dýralæknirinn í Búðardal sinnir fimm sveitarfélögum á nokkuð stóru svæði en auk fyrrgreindra sveitarfélaga fer…Lesa meira

true

Vilja að Herjólfur hefji siglingar um Breiðafjörð hið fyrsta

Á 66. fjórðungsþingi Vestfirðinga, sem haldið var á Ísafirði dagana 22. og 23. otkóber, var ályktun um samgöngumál áberandi en eins og segir í inngangi hennar hafa Vestfirðir staðið aftar öðrum landshlutum á öllum sviðum samgöngukerfisins á liðnum árum. Fjórðungsþing Vestfirðinga krefst þess að samgöngumál á Vestfjörðum verði sett í forgang. Breiðafjarðarferjan Baldur fær sína…Lesa meira

true

Grindin komin upp á netaverkstæði G.Run hf

Góður gangur er í framkvæmdum við nýtt netaverkstæði Guðmundar Runólfssonar hf í Grundarfirði. Nú eru starfsmenn á fullu við að reisa upp stálgrindurnar og gengur verkið vel. Það verður væntanlega búið að reisa og loka húsinu innan nokkurra vikna en þá er öll innivinnan eftir. Stefnt er að því að taka húsið í notkun fljótlega…Lesa meira