
Herjólfur III. Ljósm. af vef Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs.
Vilja að Herjólfur hefji siglingar um Breiðafjörð hið fyrsta
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á 66. fjórðungsþingi Vestfirðinga, sem haldið var á Ísafirði dagana 22. og 23. otkóber, var ályktun um samgöngumál áberandi en eins og segir í inngangi hennar hafa Vestfirðir staðið aftar öðrum landshlutum á öllum sviðum samgöngukerfisins á liðnum árum. Fjórðungsþing Vestfirðinga krefst þess að samgöngumál á Vestfjörðum verði sett í forgang. Breiðafjarðarferjan Baldur fær sína umfjöllun í ályktuninni en ferjan er eins og kunnugt er grunnstoð í samgöngum á Vestfjörðum, nú þegar sjá má fram á heilsárs samgöngur milli sunnan- og norðanverðra Vestfjarða með framkvæmdum á Dynjandisheiði.\r\n\r\nFjórðungsþingið lagði áherslu á að núverandi ferja annar ekki eftirspurn miðað við núverandi siglingaáætlun. Því sé enn mikilvægara að tryggja öryggi farþega um borð og nauðsynlegt að endurnýja núverandi ferju. Það er skýr krafa fjórðungsþingsins að ekki verður unað við þá niðurstöðu Vegagerðarinnar að hagstæðast sé að uppfylla núverandi samning við Sæferðir sem gildir til 31. maí 2022 með möguleika á framlengingu til 31. maí 2023.\r\n\r\nÞað er skýr krafa sveitarfélaga á Vestfjörðum að hafinn verði strax undirbúningur að því að gera gamla Herjólfi kleift að leggja að bryggju á Brjánslæk og Flatey og að hann hefji siglingar við fyrsta tækifæri og sigli þar til ný ferja verður fengin. Einnig að við endurbyggingu á ekjubrúm verði miðað við að þær henti bæði Herjólfi og nýrri ferju. Fjórðungsþingið lagði auk þess ríka áherslu á að lokið verði við gerð viðbragðsáætlunar vegna ferjuslysa á Breiðafirði, sem lagt var til árið 2011 að yrði unnin, en tíðar bilanir og vegna aldur skipsins er mikið áhyggjuefni að öryggi farþega er ekki tryggt.",
"innerBlocks": []
}