Mæðrastyrksnefnd Akraness undirbýr úthlutanir

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú er farið að styttast í jól og Mæðrastyrksnefnd Akraness undirbýr úthlutanir fram að hátíðum. Nefndin var á hrakhólum með húsnæði en nú er orðið ljóst að aðstaða hennar verður á sama stað og í fyrra, í húsinu sem flestir Akurnesingar þekkja sem HB-húsið en í dag hefur Breið þróunarsetur aðstöðu í húsinu. Gengið er inn um aðalinngang við Hafnarbraut. Að sögn Maríu Ólafsdóttur hjá Mæðrastyrksnefnd tafði óvissan um húsnæði undirbúning en nefndin er nú að afla framlaga frá hinum ýmsu fyrirtækjum, bæði á Akranesi og víðar. Þá styrkir Kaupfélag Skagfirðinga góðgerðarfélög með matargjöfum í nóvember og desember.\r\nMaría segir að ljóst sé með úthlutun síðustu vikuna í nóvember en að ekki sé ljóst hvort önnur úthlutun verði fram að jólaúthlutun sem fer fram 16. desember. Hvetur María fyrirtæki og einstaklinga til að taka myndarlegan þátt í þessu verkefni sem snýst um að styðja við þá sem verst standa í samfélaginu.\r\nFyrir þá sem vilja styrkja Mæðrastyrksnefnd með fjárframlögum er bankareikningur nefndarinnar:\r\n\r\n<strong>0552-14-402048 og kennitalan 411276-0829.</strong>",
  "innerBlocks": []
}
Mæðrastyrksnefnd Akraness undirbýr úthlutanir - Skessuhorn