
Daníel Haraldsson er nýr dýralæknir í Búðardal. Ljósm. af vefsíðu Reykhólahrepps.
Nýr dýralæknir tekinn til starfa í Búðardal
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Daníel Haraldsson er nýr dýralæknir sem sinnir dýralæknaþjónustu á Ströndum, Reykhólahreppi og í Dalabyggð. Frá þessu segir á vef Reykhólahrepps, en Daníel tók við 1. október síðastliðinn og tekur við af Gísla Sverri Halldórssyni sem sinnt hefur embættinu frá 2012. Dýralæknirinn í Búðardal sinnir fimm sveitarfélögum á nokkuð stóru svæði en auk fyrrgreindra sveitarfélaga fer hann í Árneshrepp og Kaldrananeshrepp og að auki í gamla Bæjarhrepp, þ.e. alveg inn í botn Hrútafjarðar. Starfið felur í sér að gegna dýralæknisþjónustu fyrir búfé og gæludýr á svæðinu og tryggja þar með dýraeigendum nauðsynlega almenna þjónustu og bráðaþjónustu við dýr.\r\n\r\nDaníel lærði dýralækningar í Kaupmannahöfn og starfaði fyrstu tvö árin í Svíþjóð en eftir að hann kom heim leysti hann af dýralækninn í Stykkishólmi 2016-2017. Þá hefur hann rekið sína eigin dýralæknastofu á Egilsstöðum síðan. Daníel flutti í hús fyrirrennara síns og tók við allri aðstöðu svo dýralækninn má finna á sama stað og áður að Ægisbraut 19 í Búðardal.\r\n\r\nAðspurður segist Daníel á vef Reykhólahrepps lítast vel á starfið en hann er enn að koma sér fyrir í Búðardal og hlakkar til að kynnast fólkinu á svæðinu. Hann á ættir að rekja til svæðisins en forfeður hans voru frá Goddastöðum í Laxárdal og Dagverðarnesseli á Ströndum. Símatími dýralæknis er alla virka daga frá klukkan 9-11 í síma 434-1122 en þess utan er hægt að ná í Daníel í síma 841-8422.",
"innerBlocks": []
}