Covid tölur fara lækkandi á Vesturlandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í morgun birti lögreglan á Vesturlandi nýjar tölur yfir Covid-19 í umdæminu. Óhætt er að segja að tölurnar yfir einstaklinga í sóttkví hafi lækkað verulega frá því á föstudag. Fjöldi einstaklinga í einangrun fer einnig lækkandi þó lækkunin sé minni. Í sóttkví eru nú 51 samanborið við 96 og í einangrun eru 46 miðað við 49 fyrir þremur vikum.\r\n\r\nEnn er staðan verst í Búðardal þar sem 19 eru í sóttkví, samanborið við 32 á föstudag og 24 í stað 25 í einangrun. Í Borgarnesi eru nú ellefu í sóttkví en voru 30 en fólki í einangrun hefur þó fjölgað úr sex í átt.\r\n\r\nÁ Akranesi fækkar verulega í báðum hópum. Í sóttkví fækkar úr 18 í 9 og í einangrun fækkar úr 15 í 11. Í Ólafsvík er breytingin minni. Þar fækkar í sóttkví úr tólf í ellefu en fjöldi í einangrun er þrír og er óbreyttur. Staðan er best í Grundarfirði þar sem enginn er í sóttkví né einangrun en í Stykkishólmi er einn í sóttkví og enginn í einangrun.\r\n\r\nÍ heild er því um þriðjungslækkun í heildina yfir kjördæmið. Geta Vestlendingar því andað léttar, að minnsta kosti í bili, en tölur sem lögreglan birti síðastliðinn föstudag og við sögðum frá í Skessuhorni voru sláandi enda hafði fjöldinn í einangrun og sóttkví tífaldast á þriggja vikna tímabili.",
  "innerBlocks": []
}
Covid tölur fara lækkandi á Vesturlandi - Skessuhorn