Á loðnuveiðum. Ljósm. FH.

Loðnan skilar auknum verðmætum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fyrstu níu mánuðum ársins er útflutningsverðmæti sjávarafurða komið í rúma 213 milljarða króna. Það er rúmlega 8% aukning í krónum talið miðað við sama tímabil í fyrra. Gengi krónunnar hefur að jafnaði verið um 2% sterkara fyrstu níu mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra og er aukningin þar með aðeins meiri í erlendri mynt, eða 10%. Aukningu í útflutningsverðmætum sjávarafurða má að langstærstum hluta rekja til loðnu. Á fyrstu níu mánuðum ársins er útflutningsverðmæti loðnuafurða komið í tæplega 21 milljarð króna. Á sama tímabili í fyrra var verðmæti þeirra rétt um tveir milljarðar króna, en þar var um birgðasölu að ræða enda hafði loðnubrestur verið undangengin tvö ár. Ef verðmæti loðnuafurða er undanskilið í tölum um útflutning, stendur útflutningsverðmæti sjávarafurða nánast í stað á milli ára.",
  "innerBlocks": []
}
Loðnan skilar auknum verðmætum - Skessuhorn