Smári Hrafn og Guðbjörg á góðri stund á Spáni. Ljósm. úr einkasafni.

Verður með Skagamönnum í anda á Vökudögum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skagamaðurinn Smári Hrafn Jónsson hefur um árabil búið á Spáni. Föstudaginn 5. nóvember næstkomandi mun hann opna myndlistarsýningu í hinum aldagamla listamannabæ Altea á Spáni. Segist hann þannig ætla að verða með Skagamönnum í anda þegar Vökudagar fara fram. Í samtali við Skessuhorns segir Smári að upphaflega hafi staðið til hjá honum að opna sýninguna í apríl 2020 en því hafi verið slegið á frest vegna mjög strangs útgöngubanns þar í landi á þeim tíma. Nú segir hann að smittölur séu með lægsta móti og lítið um hömlur vegna kórónaveirunnar og skapast hafi tækifærið til að setja upp sýninguna. „Það er búinn að vera draumur hjá mér í nokkur ár að halda sýningu hér í Altea, þessum mikla listamannabæ. Þegar mér var boðið að setja upp sýningu í Altearte í Altea fannst mér það mikill heiður og þáði boðið að sjálfsögðu. Það má kannski segja í gamni að ég haldi mína Vökudaga hér í Altea þetta árið, en ég tók þátt í Vökudögum heima á Akranesi áður en við fluttum hingað út,“ segir Smári.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_48465\" align=\"alignleft\" width=\"305\"]<img class=\"wp-image-48465\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Verdur-med-Skagamonnum-i-anda-a-Vokudogum_2-600x393.jpg\" alt=\"\" width=\"305\" height=\"200\" /> Myndin Sólarupprás við Krókalón er forsíðumynd sýningarinnar.[/caption]\r\n\r\nSmári, og eiginkona hans Guðbjörg Nielsdóttir Hansen, hafa búið í Altea í tæp sex ár. „Altea er mikill listamannabær á Costa Blanca ströndinni og er bærinn sem slíkur ein af ástæðunum fyrir því að við fluttum hingað. Margir íslenskir ferðamenn sem hafa komið til Benidorm og Albir, næsta bæjar við okkur, þekkja Altea enda mæla ferðaskrifstofur með því að fólk skreppi í gamla bæinn í Altea sem er einstaklega fallegur og heillandi. Eitt af áhugamálum mínum í gegnum tíðina hefur verið myndlist. Ég er búinn að dunda mér við að mála til fjölda ára. Það er frábært að búa hér með þetta áhugamál,“ segir Smári.\r\n\r\nÞetta er hans fyrsta einkasýning utan landsteinanna. Áður hefur Smári tekið þátt í samsýningu átta listamanna, af fimm þjóðernum, í Altearte í febrúar 2020.",
  "innerBlocks": []
}
Verður með Skagamönnum í anda á Vökudögum - Skessuhorn