Fréttir

true

Leggur áherslu á innviðauppbyggingu

Skessuhorn sló í byrjun vikunnar á þráðinn til nýrra þingmanna Norðvesturkjördæmis og spurði út í úrslit kosninganna og hver væru helstu verkefni næsta kjörtímabils. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, nýkjörinn þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðvesturkjördæmi sagði: „Sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins er ég ánægð með útkomu stjórnarflokkanna. Við höldum okkar þingmannafjölda en ég leyni því ekki að ég…Lesa meira

true

Bókin Við veggjalaug segir sögu Varmalands í Borgarfirði

Sögu sveitaþorpsins Varmalands/Laugalands í Borgarfirði er gerð skil í bókinni Við Veggjalaug sem Helgi Bjarnason blaðamaður frá Laugalandi skrifar og gefur sjálfur út. Um bókina, sem er í kiljuformi, segir Helgi: „Byggðin myndaðist þar vegna hversins Veggjalaugar og hefur þróast á 80 árum. Í bókinni er rakin saga húsmæðraskólans og barnaskólans, garðyrkjustöðvarinnar, sundlauganna, félagsheimilisins, íþróttavallarins,…Lesa meira

true

Malbikun á Hringveginum norðan við Borgarnes

Á milli klukkan 9 og 20 í dag, og á morgun föstudag, verður Hringvegurinn malbikaður rétt norðan við Borgarnes, frá hringtorginu við Borgarbraut og Snæfellsnesveg að gatnamótum við Hamar. Verður önnur akreinin malbikuð í einu og er hringvegurinn því lokaður til norðurs. Er bent á hjáleið um Borgarfjarðarbraut.Lesa meira

true

KG fiskverkun kaupir Valafell í Ólafsvík

Eigendur fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækisins Valafells ehf. í Ólafsvík hafa komist að samkomulagi við KG Fiskverkun ehf. í Rifi um kaup þess síðarnefnda á öllu hlutafé í Valafelli. Samningar aðila eru gerðir með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Í tilkynningu vegna kaupanna kemur fram að fyrirætlanir nýrra eigenda séu að efla enn frekar starfsemi sína í Snæfellsbæ.…Lesa meira

true

Fóru í sína árlegu berjaferð

Nemendur á yngsta stigi í Grunnskóla Snæfellsbæjar á Hellissandi skelltu sér í árlega berjaferð sína föstudaginn 10. september í góðu haustveðri. Farið var með rútu út fyrir Snæfellsjökul, stoppað á sama stað eins og svo oft áður á móts við Saxhól. Þar er gott berjaland og aðstæður góðar fyrir ungt berjatínslufólk. Berjaspretta á landinu hefur…Lesa meira

true

Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis skilar af sér skýrslu

Fundargerð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmi og skýrsla um framkvæmd talningar hefur nú verið send landskjörstjórn. Þar er vinna kjörstjórnar rakin lið fyrir lið, meðal annars flutningur og móttaka kjörgagna og fleira. Í skýrslunni er útskýrt af hverju ákveðið var að ráðast í endurtalningu atkvæða í kjördæminu á sunnudaginn, en lokatölur úr fyrri talningu höfðu verið sendar og…Lesa meira

true

Íbúakönnun um sölu ljósleiðara

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar á þriðjudaginn var lagt fram erindi frá Mílu þar sem fyrirtækið lýsti áhuga á að taka upp þráðinn í viðræðum um að kaupa ljósleiðarakerfi Hvalfjarðarsveitar. Oddviti lagði til að sveitarstjórn myndi fela sveitarstjóra að hefja undirbúning að íbúakosningu um vilja til sölu ljósleiðarakerfisins. Var sú tillaga samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.Lesa meira

true

Félagsstarf Akraneskaupstaðar flutt á Dalbraut

Það var góð stemning á mánudaginn þegar Félagsstarf Akraneskaupstaðar flutti formlega í nýja húsnæðið á Dalbraut 4. Þar fór fram kynning á starfseminni sem verður í vetur og þar má nefna almenna handavinnu, föndurnámskeið ásamt ýmsum nýjungum sem kynntar verða síðar. Að sögn Ingigerðar Guðmundsdóttur hjá Akraneskaupstað verður vetrarstarfið opið alla virka daga milli klukkan…Lesa meira

true

Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknarflokks

Skessuhorn sló í byrjun vikunnar á þráðinn til nýrra þingmanna Norðvesturkjördæmis og spurði út í úrslit kosninganna og hver væru helstu verkefni næsta kjörtímabils. Stefán Vagn Stefánsson nýkjörinn þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi sagði: „Ég er mjög þakklátur og auðmjúkur eftir svona niðurstöðu. Þetta er glæsileg kosning sem við fáum í þessu kjördæmi og á landinu…Lesa meira

true

Forval um byggingu langþráðra íþróttamannvirkja í Búðardal

Á fundi sveitarstjórnar í Dalabyggð 12. ágúst síðastliðinn var samþykkt að hefja undirbúning fyrir alútboð á nýjum íþróttamannvirkjum í Búðardal. Í lok síðustu viku var auglýst eftir þátttakendum í forvali fyrir þátttöku í alútboðinu. Að sögn Kristjáns Sturlusonar sveitarstjóra var ákveðið að byrja á forvali svo sveitarstjórn fái hugmynd um hversu mikill áhugi er á…Lesa meira