Fréttir

true

Annir á dekkjaverkstæðunum byrja snemma

Nú virðist allra veðra von og haustlægðirnar bæði aðskotaillar og snemma á ferðinni. Í kjölfar óveðurs sem gekk yfir allt norðvestanvert landið í gær urðu strax annir á dekkjaverkstæðum enda dæmi um að vegfarendur hafi lent í vandræðum á fjallvegum á illa búnum bílum sínum. Meðal þeirra bíla sem fékk vetrardekkin undir í morgun var…Lesa meira

true

Upphitunarkvöld fyrir bikarleik ÍA

Knattspyrnufélag ÍA verður með upphitun fyrir stuðningsmenn ÍA næsta föstudagskvöld í Frístundamiðstöðinni á Garðavelli og hefst klukkan 19. Daginn eftir á laugardeginum mæta Skagamenn liði Keflavíkur í undanúrslitum Mjólkurbikarsins á Akranesvelli og hefst leikurinn klukkan 12 á hádegi. Í tilkynningu frá Knattspyrnufélagi ÍA segir að nú sé orðið tímabært að hittast, slá á létta strengi…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu stórt gegn Haukum á heimavelli

ÍA lék sinn fyrsta leik í vetur í 1. deild karla í körfubolta þegar þeir léku gegn liði Hauka í íþróttahúsinu við Vesturgötu í gærkvöldi. Skagamenn fengu óvænt sæti í fyrstu deildinni þegar þeir þáðu boð KKÍ að taka sæti Reynis Sandgerði sem lét það frá sér um miðjan september. Haukar hins vegar féllu úr…Lesa meira

true

Leitarmenn á leið til byggða eftir dvöl í Álftakrók

Fjórtán manna hópur bænda og búaliðs úr Borgarfirði hélt áleiðis í seinni leit á Arnarvatnsheiði á mánudagsmorgun. Allir komust í skála við Álftakrók fyrir myrkur en lítið var hægt að smala þann dag vegna veðurs. Í gær var svo norðan stórhríð á fjallinu og fór mannskapurinn ekki úr húsi, enda sáust ekki handa skil. Nú…Lesa meira

true

Stórtap í fyrsta leik Skallagríms í körfunni

Skallagrímur lék sinn fyrsta leik á tímabilinu í 1. deild karla í körfuknattleik á mánudagskvöldið þegar liðið mætti Álftanesi syðra. Mikið jafnræði var með liðunum í byrjun leiks en eftir fimm mínútna leik tóku heimamenn við sér og komust í 17:10.  Sá munur hélst nokkurn veginn fram að lokum fyrsta leikhluta en þó náðu Skallagrímsmenn…Lesa meira

true

Opinn fræðslufyrirlestur um náttúrulegar lausnir og árbakkavarnir í Andakílsá

Braut landslagsarkitektúrs við Landbúnaðarháskóla Íslands stendur fyrir opnum fræðslufyrirlestri næstkomandi föstudag um náttúrulegar lausnir og árbakkavarnir. Sérfræðingar frá cbec eco-engineering í Skotlandi eru hér á vegum ON til að vinna að lausnum í Andakílsá. Dr. Hamish Moir framkvæmdastjóri cbec og landmótunarfræðingur mun ásamt Dr. Jóni Örvari G Jónssyni frá ON miðla reynslu sinni og fróðleik.…Lesa meira

true

„Við vorum rosalega brothættir í mótlætinu“

Víkingur Ólafsvík endaði í neðsta sætinu í Lengjudeildinni í sumar með átta stig í 22 leikjum, vann tvo leiki, gerði tvö jafntefli og tapaði átján leikjum. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Guðjóni Þórðarsyni, þjálfara Víkings, sem tók við liðinu í byrjun júlí af Gunnari Einarssyni og fyrsta spurningin til hans var hvernig hefði verið að ganga…Lesa meira

true

„Káraverkefnið er mér afar hugleikið“

Knattspyrnufélagið Kári lék fjórða árið í röð í 2. deild karla í sumar en þurfti að sætta sig við fall. Liðið endaði í neðsta sætinu með níu stig í 22 leikjum, vann aðeins einn leik, gerði sex jafntefli og tapaði fimmtán. Skessuhorn heyrði í Ásmundi Guðna Haraldssyni, Ása, þjálfara Kára, og fékk hann í stutt…Lesa meira

true

Stórauka gistingu að Móum

Hjónin Grétar Jónsson og Þórlaug Steingrímsdóttir eiga og reka Móa Guesthouse í Hvalfjarðarsveit. Í gistihúsinu eru fjögur herbergi en einnig hafa verið í boði tvö smáhýsi. Þau hjónin hafa nú bætt fimm nýjum gistihúsum við og það sjötta er á leiðinni en húsin koma tilbúin frá Lettlandi. Þá eru þau með hugmyndir um frekari fjölgun…Lesa meira

true

Með mexíkóskan hatt og fána í sjálfsmyndatöku

Þessi erlendi ferðamaður lenti í vandræðum með að hemja vindinn þegar hann hugðist taka sjálfsmynd við rætur Kirkjufells í norðan rokinu fyrr í dag. Hvorki glæsilegur hatturinn né fáninn vildu vera til friðs, sama hvað reynt var. Tómas Freyr Kristjánsson fréttaritari Skessuhorns í Grundarfirði fangaði þessa tilburði á filmu.Lesa meira