
Ásmundur Haraldsson, þjálfari Kára. Ljósm. vaks
„Káraverkefnið er mér afar hugleikið“
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Knattspyrnufélagið Kári lék fjórða árið í röð í 2. deild karla í sumar en þurfti að sætta sig við fall. Liðið endaði í neðsta sætinu með níu stig í 22 leikjum, vann aðeins einn leik, gerði sex jafntefli og tapaði fimmtán. Skessuhorn heyrði í Ásmundi Guðna Haraldssyni, Ása, þjálfara Kára, og fékk hann í stutt spjall um tímabilið. Kári var nánast allt tímabilið í fallbaráttu og fyrsti og eini sigurleikur Kára í sumar kom ekki fyrr en í byrjun júlí. Aðspurður hvernig hefði verið að þjálfa við þessar aðstæður, varðandi sjálfstraust leikmanna og hugarfar, segir Ási að það hafi í sjálfu sér ekkert verið erfitt að þjálfa liðið við þessar kringumstæður: „Við fórum vel og vandlega yfir tilgang og markmið liðsins og við vissum fyrir fram að tímabilið yrði erfitt. Við horfðum í frammistöðu frekar en úrslit og við reyndum að halda planinu okkar gangandi þrátt fyrir erfið úrslit. Það voru ekki margir leikir þar sem að liðið var yfirspilað og við virkilega kepptum við bestu liðin í deildinni, mörg hver vel mönnuð og þjálfuð.“\r\n\r\n<em>Viðtal við Ásmund má lesa í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}