Upphitunarkvöld fyrir bikarleik ÍA

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Knattspyrnufélag ÍA verður með upphitun fyrir stuðningsmenn ÍA næsta föstudagskvöld í Frístundamiðstöðinni á Garðavelli og hefst klukkan 19. Daginn eftir á laugardeginum mæta Skagamenn liði Keflavíkur í undanúrslitum Mjólkurbikarsins á Akranesvelli og hefst leikurinn klukkan 12 á hádegi. Í tilkynningu frá Knattspyrnufélagi ÍA segir að nú sé orðið tímabært að hittast, slá á létta strengi og hita vel upp fyrir undanúrslitaleikinn. Miðaverð á viðburðinn er 6000 krónur en innifalið í því verði er kvöldmatur, skemmtiatriði en einnig verða léttar veigar seldar. Skráning hjá <a href=\"mailto:hlini@ia.is\">hlini@ia.is</a>.",
  "innerBlocks": []
}
Upphitunarkvöld fyrir bikarleik ÍA - Skessuhorn