Magnús Eggertsson ryður hér vegslóðann að Álftakróksskála til að leitarmenn gætu haldið heim á leið á hrossum sínum. Ljósm. JM

Leitarmenn á leið til byggða eftir dvöl í Álftakrók

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fjórtán manna hópur bænda og búaliðs úr Borgarfirði hélt áleiðis í seinni leit á Arnarvatnsheiði á mánudagsmorgun. Allir komust í skála við Álftakrók fyrir myrkur en lítið var hægt að smala þann dag vegna veðurs. Í gær var svo norðan stórhríð á fjallinu og fór mannskapurinn ekki úr húsi, enda sáust ekki handa skil. Nú í morgun hefur rofað til en mikill og blautur snjór er um alla heiðina. Magnús Eggertsson bóndi í Ásgarði fór í morgun á vel búinni dráttarvél og ruddi vegslóðann að Álftakróki. Að öðru leyti er heiðin með öllu ófær og verður ekki smalað meira í þessari ferð og heldur mannskapurinn með hross sín og hunda til byggða í dag. Þá mun vel búinn björgunarsveitarbíll frá Oki fara í skálann í dag og sækja búnað leitarfólks og flytja til byggða.",
  "innerBlocks": []
}
Leitarmenn á leið til byggða eftir dvöl í Álftakrók - Skessuhorn