Félagsstarf Akraneskaupstaðar flutt á Dalbraut

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það var góð stemning á mánudaginn þegar Félagsstarf Akraneskaupstaðar flutti formlega í nýja húsnæðið á Dalbraut 4. Þar fór fram kynning á starfseminni sem verður í vetur og þar má nefna almenna handavinnu, föndurnámskeið ásamt ýmsum nýjungum sem kynntar verða síðar. Að sögn Ingigerðar Guðmundsdóttur hjá Akraneskaupstað verður vetrarstarfið opið alla virka daga milli klukkan 10 og 16 og segir hún að allir séu velkomnir og hvetur fólk til að mæta og kynna sér starfsemina. Mjög góð mæting var á kynninguna, eða vel yfir 80 manns. Boðið var upp á kaffi og léttar veitingar sem fóru vel í mannskapinn.",
  "innerBlocks": []
}
Félagsstarf Akraneskaupstaðar flutt á Dalbraut - Skessuhorn