Valafell ehf. í Ólafsvík er til húsa á Snoppuvegi 4. Ljósm. af.

KG fiskverkun kaupir Valafell í Ólafsvík

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eigendur fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækisins Valafells ehf. í Ólafsvík hafa komist að samkomulagi við KG Fiskverkun ehf. í Rifi um kaup þess síðarnefnda á öllu hlutafé í Valafelli. Samningar aðila eru gerðir með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Í tilkynningu vegna kaupanna kemur fram að fyrirætlanir nýrra eigenda séu að efla enn frekar starfsemi sína í Snæfellsbæ.\r\n\r\nValafell ehf. er rótgróið útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki í Snæfellsbæ sem rekur sögu sína allt til ársins 1961. Fyrirtækið gerir út Ólaf Bjarnason SH 137, sem er 112 lesta bátur, smíðaður á Akranesi árið 1973 og er gerður út á dragnót og net. Árið 1990 tók fyrirtækið í notkun nýtt fiskvinnsluhús og rak þar saltfiskvinnslu til ársins 2011 en þá var vinnslan flutt í stærra húsnæði eftir miklar endurbætur og ný tæki keypt til fiskvinnslu. Björn Erlingur Jónasson og Kristín Vigfúsdóttir segja um sölu á fyrirtæki þeirra: „Við erum mjög ánægð með að samningar hafi tekist við KG Fiskverkun og þannig tryggt að starfsemin verði áfram í heimabyggð og bindum miklar vonir við að hún verði efld enn frekar.“\r\n\r\nKG Fiskverkun ehf. er eins og kunnugt er öflugt útgerðarfélag, sem gerir út skipið Tjald SH 270 með heimahöfn í Rifi. Þá rekur félagið einnig fiskvinnslu í Snæfellsbæ. Daði Hjálmarsson framkvæmdastjóri KG Fiskverkunar fagnar kaupunum og segir í tilkynningu: „Við erum mjög þakklát fyrir það traust sem þau Kristín og Björn Erlingur hafa sýnt okkur og hlökkum til að takast á við nýjar áskoranir.“\r\n\r\n[caption id=\"attachment_47777\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-47777 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/09/KG-fiskverkun-kaupir-Valafell_2-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" /> Ólafur Bjarnason SH-137.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}