Frá endurtalningu atkvæða á Hótel Borgarnesi síðastliðinn sunnudag. Ljósm. mm.
Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis skilar af sér skýrslu
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fundargerð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmi og skýrsla um framkvæmd talningar hefur nú verið send landskjörstjórn. Þar er vinna kjörstjórnar rakin lið fyrir lið, meðal annars flutningur og móttaka kjörgagna og fleira. Í skýrslunni er útskýrt af hverju ákveðið var að ráðast í endurtalningu atkvæða í kjördæminu á sunnudaginn, en lokatölur úr fyrri talningu höfðu verið sendar og fundi yfirkjörstjórnar frestað klukkan 07:35 á sunnudagsmorgni. Ákveðið hafi verið að framhalda fundi yfirskjórstjórnar kl. 13:00. „Meðan á fundarfrestun stóð voru kjörgögn geymd í salnum þar sem talningin fór fram en hann var læstur og öryggismyndavélar eru við inngang hans,“ segir í skýrslu yfirkjörstjórnar. Þá segir: „Vegna ábendingar formanns landskjörstjórnar var ákveðið að fara yfir atkvæði greidd C lista Viðreisnar. Í fyrsta C atkvæðabunka sem oddviti tók upp reyndust vera átta atkvæði sem tilheyrðu D lista og eitt atkvæði sem tilheyrði B lista. Yfirkjörstjórn fór í framhaldi yfir öll atkvæði C lista þ.e. athugaði hvort öll önnur en fyrrgreind atkvæði D og B lista tilheyrðu ekki örugglega C lista sem voru í bunkum merktum C. Svo reyndist vera en þá lá fyrir að mannleg mistök höfðu átt sér stað við talningu atkvæða undir morgun og níu atkvæði höfðu ranglega lent í atkvæðabunka C lista sem tilheyrðu öðrum framboðslistum. Með hliðsjón af þessu taldi yfirkjörstjórn ekki annað fært en að endurtelja öll atkvæði sem talin höfðu verið og yfirfara annað sem kynni að hafa leitt til þess að fyrrgreind niðurstaða um fjölda atkvæða hvers framboðslista væri ekki rétt.“\r\n\r\nEndurtalning atkvæða í Norðvesturkjödæmi hófst svo á Hótel Borgarnesi klukkan 15:10 á sunnudaginn; „og fór þannig fram að fyrst var öllum atkvæðaseðlum flett og athugað hvort að í atkvæðabunkum hvers framboðslista væri ekki aðeins atkvæðaseðlar merktir viðkomandi framboði. Í framhaldi af því voru atkvæðaseðlar taldir að nýju í 50 seðla búnt. Endurtalningu lauk um kl. 18:05. Niðurstaða endurtalningar var þessi:\r\n\r\nFramsóknarflokkur B listi 4.448\r\n\r\nViðreisn C listi 1.063\r\n\r\nSjálfstæðisflokkur D listi 3.897\r\n\r\nFlokkur fólksins F listi 1.510\r\n\r\nSósíalistaflokkur J listi 728\r\n\r\nMiðflokkur M listi 1.278\r\n\r\nFrjálslyndi lýðræðisfl. O listi 73\r\n\r\nPíratar P listi 1.081\r\n\r\nSamfylking S listi 1.195\r\n\r\nVinstri hreyf. grænt framboð V listi 1.978\r\n\r\nAuðir seðlar 382\r\n\r\nÓgildir seðlar 35\r\n\r\nSamtals greidd atkvæði 17.668.“\r\n\r\nAð endingu segir í skýrslu yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis:\r\n\r\n„Vegna breytinga frá fyrri talningu tekur yfirkjörstjórn þetta fram:\r\n
\r\n \t
Heildaratkvæðum fjölgaði um tvö vegna innsláttarvillu í lok fyrri talningar
\r\n \t
Auðir seðlar voru í fyrri talningu taldir vera 394 en reyndust vera 382 og hafði því fækkað um 12. Skýringin á því er sú að 11 af þessum seðlum voru ógildir en höfðu fyrir mistök verið taldir með auðum seðlum. Einn seðill sem talinn hafði verið ógildur var það sannanlega ekki þar sem ekkert auðkenni var á honum nema X í kassanum fyrir framan viðkomandi listabókstaf. En það skal tekið fram að þessi atkvæðaseðill tilheyrði hvorki C né M lista.
\r\n \t
Atkvæðum C lista fækkaði um níu en þau höfðu mislagst í C bunka, en átta þeirra tilheyrðu D lista en eitt B lista.
\r\n \t
Atkvæðum D lista fjölgaði um 10 en þar af voru átta í atkvæðabunka C lista, sbr. ofanritað og tvö önnur höfðu mislagt í aðra bunka en D lista.
\r\n \t
Allar aðrar breytingar eru vegna þess að eitt og eitt atkvæði hafði mislagst í atkvæðabunkum.“
\r\n
\r\nYfirkjörstjórn tekur fram að þær breytingar sem urðu við endurtalningu eru vegna mannlegra mistaka og harmar yfirkjörstjórn að þær hafi átt sér stað og biðst velvirðingar á þeim. En með endurtalningunni telur yfirkjörstjórn að hún hafi leiðrétt þessi mistök. Að lokinni endurtalningur voru kjörgögn þ.m.t. atkvæðaseðlar fluttir til geymslu í innsiglaðan fangaklefa á lögreglustöðinni í Borgarnesi og þar verða gögnin geymd þar til kærufrestur verður liðinn. Oddvita er falið að láta eyða gögnunum að kærufresti liðnum.“\r\n\r\nLandskjörstjórn úthlutar þingsætum\r\n\r\nLandskjörstjórn hafa nú borist skýrslur alla yfirkjörstjórna í kjördæmunum sex. Landskjörstjórn mun koma saman til fundar síðdegis á föstudagnn til að úthluta þingsætum á grundvelli kosningaúrslita í kjördæmum eftir almennar alþingiskosningar sem fram fóru 25. september sl. Umboðsmönnum þeirra stjórnmálasamtaka sem buðu fram við alþingiskosningarnar er gefinn kostur á að koma til fundarins.\r\n\r\n<a class=\"link-to-pdf\" title=\"Skýrsla yfirkjörstjórnar NV kjördæmis\" href=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/09/Skyrsla-yfirkjorstjornar-NV-kjordaemis.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"attachment noopener wp-att-47773\"><img class=\"alignnone size-medium wp-image-47774\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/09/Skyrsla-yfirkjorstjornar-NV-kjordaemis-pdf-600x777.jpg\" alt=\"thumbnail of Skýrsla yfirkjörstjórnar NV kjördæmis\" width=\"232\" height=\"300\" />",
  "innerBlocks": []
Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis skilar af sér skýrslu - Skessuhorn