Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknarflokks

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skessuhorn sló í byrjun vikunnar á þráðinn til nýrra þingmanna Norðvesturkjördæmis og spurði út í úrslit kosninganna og hver væru helstu verkefni næsta kjörtímabils. Stefán Vagn Stefánsson nýkjörinn þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi sagði: „Ég er mjög þakklátur og auðmjúkur eftir svona niðurstöðu. Þetta er glæsileg kosning sem við fáum í þessu kjördæmi og á landinu öllu. En þessi niðurstaða er kannski sérstaklega góð hér, við náum fyrsta þingmanni kjördæmisins og erum með þrjá kjördæmakjörna þingmenn þar sem eru aðeins sjö kjördæmakjörnir. Þetta er góður árangur og ég er mjög þakklátur öllum þeim sem treystu okkur og aðstoðuðu.“\r\n\r\nSpurður um þau málefni sem hann ætli að beita sér fyrir á kjörtímabilinu svarar Stefán: „Ég ætla að beita mér fyrir kjördæmið. Eins og ég hef margsinnis sagt eru hér fjölmörg verkefni sem þarf að takast á við. Byggðamál eru sérstakt áhugamál hjá mér og ég brenn fyrir þau og hef unnið í þeim síðustu tólf ár í gegnum sveitarstjórn. Ég hlakka til að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem bíða hér í þessu kjördæmi og við verðum líka að horfa á þau með byggðagleraugunum. Þetta á til dæmis við um heilbrigðismál og önnur mikilvæg mál sem við þurfum að ráðast í.“\r\n\r\nHvert verður fyrsta verk Stefáns í nýju starfi? „Ætli það verði ekki bara að bjóða góðan dag og koma mér inn á nýja vinnustaðinn,“ svarar hann og hlær. „Það er erfitt að forgangsraða verkefnum núna, áður en búið er að mynda ríkisstjórn. Ég held að við þurfum bara að bíða og sjá hvernig það verkefni fer. En í mínum huga er það ljóst að niðurstaða kosninganna var að fólk er að kalla eftir stöðugleika en ekki byltingu. Ég held því að stærsta verkefnið verði að viðhalda stöðugleika og byggja ofan á og vinna okkur út úr verkefnum,“ segir Stefán Vagn Stefánsson fyrsti þingmaður í Norðvesturkjördæmi.",
  "innerBlocks": []
}
Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknarflokks - Skessuhorn