
Sveitarstjórn Dalabyggðar undirbýr nú byggingu íþróttamannvirkja. Ljósm. sm.
Forval um byggingu langþráðra íþróttamannvirkja í Búðardal
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi sveitarstjórnar í Dalabyggð 12. ágúst síðastliðinn var samþykkt að hefja undirbúning fyrir alútboð á nýjum íþróttamannvirkjum í Búðardal. Í lok síðustu viku var auglýst eftir þátttakendum í forvali fyrir þátttöku í alútboðinu. Að sögn Kristjáns Sturlusonar sveitarstjóra var ákveðið að byrja á forvali svo sveitarstjórn fái hugmynd um hversu mikill áhugi er á verkinu. Á fundi sveitarstjórnar 9. september síðastliðinn var lagt fram minnisblað frá starfshópi í undirbúningi íþróttamannvirkja. Þar sem segir að í forvalsgögnum skuli gera ráð fyrir að verktaki úvegi allt hönnunarteymið og eru umsækjendur beðnir um að taka afstöðu til þess hvort 600 milljóna króna mark sé raunhæft í núverandi tillögu.\r\n\r\nÁ íþróttamiðstöðin að hafa íþróttasal, þjónustukjarna með búningsklefum, lyftingasal og útisundlaug. Í auglýsingunni segir að íþróttamiðstöðin eigi að vera um 1.300 fm að stærð og er þá útisvæði með sundlaugarkeri, vaðlaug og heitum pottum um 200 fm. Áætlað er að starfsemin verði öll á einni hæð. „Þá verður gert ráð fyrir lagnarými sundlaugar í kjallara og tæknirými á 2. hæð húss. Í húsinu verður hægt að iðka ýmsar íþróttir, bæði æfingar og keppni en miðað er við að í því verði mætt kröfum til keppni í körfubolta,“ segir í auglýsingunni frá Dalabyggð. Aðspurður segir Kristján sveitarstjóri það eiga eftir að koma í ljós hvernig forvalið fari áður en nákvæm tímalína fyrir verkið gæti legið fyrir. Í forvalsgögnunum eru sett fram drög að tímalínu og samkvæmt henni ætti vali á þátttakendum í alútboði að ljúka 22. október næstkomandi og alútboðsgögn að vera afhent verktökum 18. nóvember. Tilboðum í verkið á að skila ekki síðar en 7. janúar næstkomandi og áætlað er að undirritun verksamnings verði 21. janúar og að framkvæmdir hefjist þá. „En þetta er þó allt með fyrirvara um hvað kemur út úr forvalinu og ákvarðanir sveitarstjórnar í framhaldi af því,“ segir Kristján.\r\n\r\n„Verkkaupi hefur sett byggingunni og starfsemi hennar sjálfbærnimarkmið sem mikilvægt er að fylgja eftir. Lögð er megináhersla á að verkið verði unnið á sem hagkvæmastan hátt,“ segir í auglýsingunni. Umsókn skal skila með tölvupósti með öllum umbeðnum gögnum fyrir kl. 16 þriðjudaginn 12. október næstkomandi. Forvalsgögnin verða afhent að ósk umsækjenda í gegnum tölvupóst, kristjan@dalir.is. Nánari upplýsingar er að finna á vef Dalabyggðar.",
"innerBlocks": []
}