Fréttir

true

Heilsudagar í Stykkishólmi hófust í gær

Heilsuefling er áberandi í Stykkishólmi þessa dagana því í gær hófust Heilsudagar í Hólminum sem hluti af ÍSÍ íþróttaviku Evrópu og lýkur sunnudaginn 3. október. Dagskráin er hlaðin skemmtilegum heilsutengdum viðburðum og kynningum á íþróttastarfi í bænum sem hentar fólki á öllum aldri. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá og ættu því allir að geta fundið…Lesa meira

true

Níu komnir í einangrun á Vesturlandi

36 greindust með kórónuveirusmit innanlands í gær skv. uppfærðum tölum á Covid.is. Eru það jafn margir og greindust daginn áður. 1.164 eru í sóttkví á landinu og átta á sjúkrahúsi, þar af eru fjórir á gjörgæslu. Fjölgað hefur um tvo í einangrun á Vesturlandi á milli daga og eru nú níu í einangrun í landshlutanum…Lesa meira

true

Skoða fjarvarmaveitu fyrir Grundarfjarðarbæ

Bæjarstjórn Grundarfjarðar skoðar nú í samstarfi við Veitur ohf. hvort hægt sé að hitaveituvæða Grundarfjarðarbæ með svokallaðri fjarvarmaveitu. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Grundarfjarðarbæ og Veitum. Samstarfið hófst í ársbyrjun og felst í forhönnun og fýsileikakönnun á hitaveituvæðingu Grundarfjarðarbæjar með varmadælum. Varminn yrði þá sóttur úr bæði umhverfinu og glatvarma frá fyrirtækjum í…Lesa meira

true

Lokanir á Jaðarsbökkum vegna kosninga

Vegna komandi kosninga verður skerðing á opnun/þjónustu í Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum á Akranesi næstu daga. Íþróttasalurinn verður lokaður fram á sunnudag. Salur 3 (græni) og Salur 5 (parket) verða einnig lokaðir fram á sunnudag. Þreksalur og salur 2 (gervigras) verða lokaðir á morgun laugardaginn 25. september. Sundlaugargestir þurfa ekki að hafa áhyggjur því sundlaugin verður…Lesa meira

true

Nytjamarkaðurinn í Grímshús

Nytjamarkaður Körfuknattleiksdeildar Skallagríms hefur fengið nýtt húsnæði. Markaðurinn mun flytja í Grímshús í Brákarey en frá því er greint á Facebook síðu Nytjamarkaðarins. Jafnframt er tekið fram að opið verður frá kl. 16:00 í dag fyrir móttöku stærri hluta í Grímshúsi ef fólk vill gefa.Lesa meira

true

Heilsudagar í Snæfellsbæ hefjast í næstu viku

Snæfellsbær gerir allt sem við kemur heilsu góð skil dagana 29. september til 3. október næstkomandi og heldur heilsudaga Snæfellsbæjar í fimmta skipti. Dagskráin er afar vegleg og er skipulögð með hreyfiviku Evrópu í huga en það er verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem hefur það markmið að sporna við auknu hreyfingarleysi meðal…Lesa meira

true

Söfnun fyrir Innra-Hólmskirkju

Eins og áður hefur verið greint frá í Skessuhorni hafa frá því í vor verið miklar framkvæmdir við Innra-Hólmskirkju þar sem gert hefur verið við steypuskemmdir og kirkjan máluð að utan. Viðgerð á þaki hófst um mánaðamótin júní/júlí, talsverðar fúaskemmdir komu þar í ljós en burðarvirki var í lagi. Þessari viðgerð ásamt viðgerð á turni…Lesa meira

true

Ný starfsstöð Veitna á Vesturlandi tekin í notkun

Í dag fluttu Veitur ohf. á Vesturlandi inn í nýtt þúsund fermetra hús við Lækjarflóa 1 á Akranesi. Veitur hafa fjölþætta starfsemi í rúmum helmingi sveitarfélaga í landshlutanum, allt frá norðurenda Hvalfjarðarganga; um Hvalfjarðarsveit, Akranes, Borgarbyggð, Skorradal auk Stykkishólms og Grundarfjarðar. Þeirri starfsemi verður nú allri stýrt frá nýjum stað í Lækjarflóa. Framkvæmdir við húsbygginguna…Lesa meira

true

Matvælastofnun bendir á að átaks er þörf vegna riðuveiki

Vegna þess fjölda riðutilfella sem komið hefur upp í fé á Norðurlandi vestra á undanförnum misserum telur Matvælastofnun ljóst að herða þurfi baráttuna við sjúkdóminn. Um er að ræða alvarlegan sjúkdóm sem veldur fé miklum þjáningum. Mikið tjón hlýst af riðuveiki bæði fyrir þá bændur sem lenda sjálfir í niðurskurði og þá sem þurfa að…Lesa meira

true

Píeta samtökin fá styrk

Píeta samtökin fengu nýverið úthlutað 25 milljónum króna í styrk úr ríkissjóði til að efla þjónustu sína við einstaklinga í sjálfsvígshættu sem þurfa á stuðningi og meðferð að halda. Markmið samtakanna er að fækka sjálfsvígum og sjálfsvígstilraunum og efla fræðslu og forvarnir í því skyni. Þjónusta samtakanna er gjaldfrjáls og stendur til boða öllum sem…Lesa meira