Matvælastofnun bendir á að átaks er þörf vegna riðuveiki
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vegna þess fjölda riðutilfella sem komið hefur upp í fé á Norðurlandi vestra á undanförnum misserum telur Matvælastofnun ljóst að herða þurfi baráttuna við sjúkdóminn. Um er að ræða alvarlegan sjúkdóm sem veldur fé miklum þjáningum. Mikið tjón hlýst af riðuveiki bæði fyrir þá bændur sem lenda sjálfir í niðurskurði og þá sem þurfa að búa við ýmsar hömlur á búskap sínum vegna nágrennis við riðutilfelli. Jafnframt eru fjárútlát alls samfélagsins mikil vegna sjúkdómsins, m.a. vegna kostnaðar við skimun og bóta úr ríkissjóði vegna niðurskurðar. „Átak með það að markmiði að útrýma riðu er því nauðsyn. Til þess að það markmið náist verða allir að hjálpast að. Árvekni fyrir einkennum, sýnataka úr fé sem drepst eða er lógað heima, rannsóknir á arfgerðum og útilokun á fé með áhættuarfgerðir til ásetnings eru nokkur af þeim atriðum sem bændur þurfa að hafa í huga. Sauðfjárbændur um allt land þurfa að vera á varðbergi og gera það sem í þeirra valdi stendur til að verjast riðusmiti,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun.\r\n\r\n<strong>Árvekni og sýnatökur</strong>\r\n\r\nSama á við um riðu sem aðra smitsjúkdóma, að mikilvægt er að sýktar kindur uppgötvast sem fyrst svo hægt sé að gera ráðstafanir til að hindra frekari útbreiðslu smits. Bændur þurfa því að vera vel vakandi fyrir einkennum og tilkynna héraðsdýralækni um minnsta grun. „Mjög mikilvægt er að fá til rannsókna sýni úr fé sem drepst af einhverjum ástæðum eða er lógað heima. Það eru mun meiri líkur á að riðusmit sé í kind sem t.d. dregst upp, verður afvelta eða ferst af slysförum en öðrum kindum, jafnvel þó dæmigerð riðueinkenni hafi ekki verið til staðar. Bændur eru því hvattir til að tilkynna héraðsdýralækni um slíkar kindur og láta vita þegar til stendur að slátra fullorðnu fé heima. Rannsóknir á sýnum eru bændum að kostnaðarlausu.“\r\n\r\nÍ hverri sláturtíð eru sýni tekin úr fé frá fjölmörgum bæjum. „Á þessu hausti er áhersla lögð á að taka sýni úr kindum frá bæjum sem eru í nágrenni við bæi þar sem riða hefur greinst á síðustu árum og frá bæjum sem lent hafa í riðuniðurskurði og hafa tekið fé aftur. Ólíklegra er þó að finna riðu í sýnum úr heilbrigðu sláturfé en úr kindum sem af einhverjum ástæðum er lógað heima. Mikilvægi þess að tilkynna um slíkar kindur er því ítrekað.“\r\n\r\n<strong>Einkenni</strong>\r\n\r\nÞegar kind hefur smitast af riðuveiki geta liðið allt frá nokkrum mánuðum til fimm ára þar til hún fer að sýna einkenni. Oft koma einkennin frekar fram þegar dýrið verður fyrir streitu, eins og t.d. við smölun. Fyrstu einkenni riðu geta verið mismunandi og breytileg frá degi til dags. Í sumum tilvikum er um kláða að ræða; kindurnar klóra sér á haus, síðum, afturenda og víðar. Kláði sést þó ekki í öllum tilfellum, en flest riðusmitað fé svarar þó klóri í bak. Einkenni frá taugakerfi sjást hjá sumum; kindurnar verða óttaslegnar, óöruggar með sig, hrökkva við, titra, skjálfa og gnísta tönnum. Enn ein gerð einkenna er að kindurnar liggja mikið, bera fætur hátt og slettast til í gangi. Nánari upplýsingar um riðu og einkenni hennar má finna á heimasíðu Matvælastofnunar.",
"innerBlocks": []
}
Matvælastofnun bendir á að átaks er þörf vegna riðuveiki - Skessuhorn