Fréttir

true

Sjö í einangrun og 130 í sóttkví á Vesturlandi

36 voru greindir með kórónuveirusmit hér á landi í gær skv. uppfærðum tölum á Covid.is. 25 þeirra voru í sóttkví við greiningu og 24 voru fullbólusettir. 1.170 eru í sóttkví á landinu, sjö á sjúkrahúsi og þar af þrír á gjörgæslu. Samkvæmt tölum á Covid.is eru sjö í einangrun vegna kórónuveirusmits á Vesturlandi og 130…Lesa meira

true

Arðsemi af lagningu Sundabrautar talin vera 10-12%

Mikil arðsemi er af lagningu Sundabrautar samkvæmt drögum að niðurstöðu óháðrar félagshagfræðilegrar greiningar. Mestur ábati felst hvort tveggja í minni akstri, útblæstri og mengun og styttri ferðatíma vegfarenda vegna styttingu leiða til og frá höfuðborgarsvæðinu. Áður hafði komið fram að kostnaður vegna þverunar Kleppsvíkur er metinn talsvert lægri með byggingu Sundabrúar en með jarðgöngum. Í…Lesa meira

true

Fríar rútuferðir á leik Skagamanna gegn Keflavík á laugardaginn

Næstkomandi laugardag fer fram síðasta umferð Pepsi Max deildarinnar í knattspyrnu. Skagamenn eiga gríðarlega mikilvægan leik gegn Keflvíkingum suður með sjó og er mikill áhugi hjá stuðningsmönnum Skagans fyrir þessum leik. Mikil stemning skapaðist í sigurleiknum á móti Fylki um síðustu helgi og í framhaldinu var ákveðið að bjóða upp á fríar rútuferðir  frá Akranesi…Lesa meira

true

Hallbjörg er fyrsta konan til að gegna starfi vaktstjóra í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar

Borgnesingurinn Hallbjörg Erla Fjeldsted tók í síðustu viku við starfi vaktstjóra í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Reykjavík. Er hún fyrsta konan til að gegna því starfi en Hallbjörg hefur starfað sem varðstjóri í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar undanfarin ár. Hún er dóttir Báru og Benna í Borgarnesi. „Ég elst upp umlukin hafinu,“ segir Hallbjörg í samtali við Skessuhorn.…Lesa meira

true

Matarsmiðja opnuð að Miðskógi í Dölum

Miðvikudaginn 15. september var formlega opnuð matarsmiðja í Suðurdölum, nánar tiltekið í Miðskógi. Páll S. Brynjarsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, opnaði smiðjuna og lýsti yfir ánægju með framtakið og ánægju með að Uppbyggingarsjóður Vesturlands hafi stutt við uppbygginguna. Skúli Guðbjörnsson bóndi í Miðskógi sagði frá tilurð smiðjunnar, sem er sprottin upp úr vinnu hóps…Lesa meira

true

Samfélagsmiðlar hafa áhrif á ímynd svæða

Samfélagsmiðlar hafa áhrif á upplifun meirihluta fólks á ímynd svæða samkvæmt niðurstöðum verkefnis sem Anna Kristín Guðmundsdóttir, meistaranemi í landslagsarkitektúr við Landbúnaðarháskólann Svíþjóðar í Uppsala, vann. Verkefnið heitir „Samfélagsmiðlar – tækifæri fyrir aðdráttarafl svæða“ og hlaut Anna Kristín styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna. Vann hún verkefnið í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands og umsjónarmaður með því var…Lesa meira

true

Ný staðsetning kjörstaðar á Akranesi

Alþingiskosningar fara fram næsta laugardag, 25. september. Akraneskaupstaður vekur athygli á því í auglýsingu í Skessuhorni vikunnar að kjörfundur fari fram í íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum í stað Brekkubæjarskóla eins og verið hefur margar undanfarnar kosningar. Hefst kjörfundur kl. 09:00 og lýkur í síðasta lagi kl. 22:00. Gengið er inn um norðuranddyri og eru kjördeildir eftirfarandi:…Lesa meira

true

Óska eftir tillögum að götunöfnum

Skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar leitar nú til bæjarbúa á Akranesi með tillögur að gatnaheitum við Sementsreitinn. Frá þessu segir á vef Akraneskaupstaðar, en óskað er eftir tillögum að nöfnum fyrir fjórar götur en legu þeirra má sjá á meðfylgjandi mynd. Fólk er hvatt að senda inn tillögur en óhætt er að senda inn oftar en…Lesa meira

true

Mikil uppbygging framundan að Stafholtsveggjum II í Borgarfirði

Miklar framkvæmdir standa nú yfir á Stafholtsveggjum II í Borgarfirði. Verið er að breyta útihúsum úr kjúklingahúsi í gistiheimili. Það er Sveinn Ragnarsson verkfræðingur sem stendur að breytingunum en hann keypti jörðina í desember 2019. Sveinn rekur verkfræðistofuna FR ráðgjöf. Húsin á jörðinni eiga sér reyndar óvenjulega fjölbreytta sögu því áður hafa þau hýst tamningastöð…Lesa meira

true

Agnarögn skilaði sér af fjalli

Réttað var í Þæfusteinsrétt í Snæfellsbæ um síðustu helgi í ágætis veðri og voru fjárskil með ágætum. Það urðu fagnaðarfundir hjá Vigdísi Júlíu Viðarsdóttur og heimalningnum Agnarögn sem fór á fjall í vor. Var hún frekar smá þegar hún fór á fjallið og sagði Sólveig Bláfeld Agnarsdóttir að þau hefðu ekki búist neitt frekar við…Lesa meira