{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Réttað var í Þæfusteinsrétt í Snæfellsbæ um síðustu helgi í ágætis veðri og voru fjárskil með ágætum. Það urðu fagnaðarfundir hjá Vigdísi Júlíu Viðarsdóttur og heimalningnum Agnarögn sem fór á fjall í vor. Var hún frekar smá þegar hún fór á fjallið og sagði Sólveig Bláfeld Agnarsdóttir að þau hefðu ekki búist neitt frekar við því að hún hefði sumarið af á fjallinu. Agnarögn kom þó öllum á óvart í réttunum. Hún var heldur ekki lengi að finna mannfólkið sitt í réttinni og urðu heldur betur fagnaðarfundir eins og sjá má á myndinni.",
"innerBlocks": []
}