
Hallbjörg Erla Fjeldsted.
Hallbjörg er fyrsta konan til að gegna starfi vaktstjóra í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Borgnesingurinn Hallbjörg Erla Fjeldsted tók í síðustu viku við starfi vaktstjóra í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Reykjavík. Er hún fyrsta konan til að gegna því starfi en Hallbjörg hefur starfað sem varðstjóri í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar undanfarin ár. Hún er dóttir Báru og Benna í Borgarnesi. „Ég elst upp umlukin hafinu,“ segir Hallbjörg í samtali við Skessuhorn. „Mamma kemur frá Skagaströnd og pabbi er Borgnesingur. Þó svo að skipaútgerð sé ekki mikil þar í bæ hugsa ég að ég hafi fljótlega smitast af sjóbakteríunni af nándinni við hafið,“ segir Hallbjörg. Sem barn sótti hún mikið í hafið, lék sér í fjörunni og sat með veiðistöng og dorgaði í Brákarey. „Fátt var um fína drætti í þeim veiðiskap, mest marhnútar og einstaka koli, en það kom ekki að sök. Ég naut mín í návist hafsins,“ segir Hallbjörg. Eftir að hún lauk námi við Grunnskólann í Borgarnesi hélt hún á Akranes í Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem hún lauk stúdentsprófi af listnámsbraut og félagsfræðibraut. Hún útskrifaðist svo frá Tónlistarskóla Borgarfjarðar með framhaldspróf í píanóleik og frá Tónskóla þjóðkirkjunnar sem kirkjuorganisti. Hún hefur nú lokið grunnnámi í sjúkraflutningum og stundar háskólanám í Sjávarútvegsfræðum við Háskólann á Akureyri.\r\n\r\n<em>Nánar er rætt við Hallbjörgu í Skessuhorni vikunnar</em>",
"innerBlocks": []
}