Fríar rútuferðir á leik Skagamanna gegn Keflavík á laugardaginn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Næstkomandi laugardag fer fram síðasta umferð Pepsi Max deildarinnar í knattspyrnu. Skagamenn eiga gríðarlega mikilvægan leik gegn Keflvíkingum suður með sjó og er mikill áhugi hjá stuðningsmönnum Skagans fyrir þessum leik. Mikil stemning skapaðist í sigurleiknum á móti Fylki um síðustu helgi og í framhaldinu var ákveðið að bjóða upp á fríar rútuferðir  frá Akranesi á leikinn á laugardaginn. Lagt verður af stað frá Jaðarsbökkum klukkan tólf á hádegi og þegar er búið að fylla tvær rútur og mjög líklegt að sú þriðja bætist við. Þá ætlar stuðningsmannasveitin sem var á síðasta heimaleik að halda uppi stuðinu í stúkunni og markmiðið er að fylla stúkuna af gulum og glöðum. Þeir sem vilja fá frítt far með rútunni geta sent tölvupóst á Hlina Baldursson hjá ÍA á <a href=\"mailto:hlini@ia.is\">hlini@ia.is</a> eða hringt í síma 691-6800.\r\n\r\nStaðan í botnbaráttunni í Pepsi Max deildinni er þannig fyrir síðustu umferðina að Keflavík er í níunda sæti með 21 stig, HK er í tíunda sæti með 20 stig, ÍA í því ellefta með 18 stig og Fylkir er fallinn í Lengjudeildina með 16 stig. Því er ljóst að Skagamenn verða alltaf að vinna lið Keflavíkur til að eiga möguleika á að halda sér uppi og treysta á í leiðinni að Breiðablik sigri HK. Þá gæti sú staða komið upp ef Skagamenn vinna Keflavík og Breiðablik og HK gera jafntefli að þau endi öll með 21 stig en þá myndi Keflavík falla á markatölu.\r\n\r\nÞað er ljóst að það verður mikil spenna í flestum leikjum dagsins og við hvetjum Skagamenn og aðra stuðningsmenn liðsins að skella sér suður eftir og styðja sína menn í þessum mikilvæga leik.",
  "innerBlocks": []
}
Fríar rútuferðir á leik Skagamanna gegn Keflavík á laugardaginn - Skessuhorn