Hörður Kristinn Harðarson verkstjóri vatnsveitu og fráveitu og Gissur Ágústsson sérfræðingur í rekstri vatns- hita og fráveitu. Þeir voru að vonum hæstánægðir með nýju bygginguna. Ljósm. mm.

Ný starfsstöð Veitna á Vesturlandi tekin í notkun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í dag fluttu Veitur ohf. á Vesturlandi inn í nýtt þúsund fermetra hús við Lækjarflóa 1 á Akranesi. Veitur hafa fjölþætta starfsemi í rúmum helmingi sveitarfélaga í landshlutanum, allt frá norðurenda Hvalfjarðarganga; um Hvalfjarðarsveit, Akranes, Borgarbyggð, Skorradal auk Stykkishólms og Grundarfjarðar. Þeirri starfsemi verður nú allri stýrt frá nýjum stað í Lækjarflóa. Framkvæmdir við húsbygginguna hófust fyrir rúmu ári og er byggingin nú fullbúin. Var framkvæmdin sem slík flokkuð með svokölluðum viðspyrnuverkefnum Veitna til að bregðast við efnahagssamdrætti vegna Covid-19. Engu að síður var brýnt að byggja yfir starfsemina því árið 2017 þurfti að rýma skrifstofubyggingu Veitna við Dalbraut 8 á Akranesi vegna myglu sem þar hafði verið greind. Frá þeim tíma hefur starfsemin verið til húsa í gámaeiningum á lóð veitna við Dalbraut. Starfsmenn Veitna fluttu í nýju bygginguna í morgun og var boðið til látlausrar athafnar eftir hádegi af þessu tilefni.\r\n\r\nHúsið í Lækjarflóa var að sögn Gissurar Ágústssonar, sérfræðings í rekstri vatns-, hita, og fráveitu, hannað og byggt út frá þarfagreiningu sem miðaði við að það yrði nógu stórt fyrir starfsemi fyrirtækisins, en þó ekki of stórt. Það er byggt á einni hæð og skiptist í skrifstofurými og tvískiptan verkstæðishluta. Í skrifstofuhlutanum, sem er næst Akranesi, eru skrifstofur, vinnuherbergi og fundaaðstaða auk kaffiaðstöðu fyrir starfsmenn og búningsherbergi. Verkstæðishlutinn skiptist annars vegar í lager og almennt verkstæði fyrir vatnsveitur með hleðslurými fyrir lyftara og inntaksrými og hins vegar í aðskilda aðstöðu fyrir fráveitu til þrifa og viðgerða á búnaði, einnig með tilheyrandi búnings- og þvottaaðstöðu. Þá er einnig tækjageymsla sem er aðgengileg utan frá.\r\n\r\nÞað voru heimamenn sem komu að byggingu hússins í kjölfar útboðs Veitna. Verktaki var Sjammi ehf. og komu allir helstu undirverktakar Sjamma sömuleiðis frá Akranesi. Jarðvinnuframkvæmdir hófust seinni hluta ágústmánaðar á síðasta ári. Húsið er byggt með burðarvirki frá Límtré Vírneti og forsteyptum einingum frá BM Vallá auk yleininga fyrir iðnaðarhluta sem koma einnig frá Límtré Vírneti. Bygging hússins stóðst kostnaðaráætlun sem var um 513 milljónir króna.\r\n\r\nÞað voru Tarkakitektar sem voru hönnuðir byggingarinnar í Lækjarflóa. Er verk þeirra almennt rómað og byggingin talin falleg og sóma sér vel á áberandi stað við innkeyrsluna að Akranesi.\r\n\r\n[gallery size=\"large\" ids=\"47600,47601,47602\"]",
  "innerBlocks": []
}
Ný starfsstöð Veitna á Vesturlandi tekin í notkun - Skessuhorn