Fréttir

true

Fjölbreytt nýsköpunarverkefni á lokaviðburði Startup Landsins

Lokaviðburður Startup Landsins fór fram á Selfossi síðastliðinn föstudag. Þar stigu fulltrúar tólf teyma frá sjö landshlutum á svið og kynntu verkefni sem þeir hafa unnið að í viðskiptahraðli landsbyggðarinnar. Undanfarnar vikur hafa þátttakendur þróað hugmyndir sínar, skerpt á viðskiptamódelum, eflt færni sína og byggt upp tengslanet. „Verkefnin endurspegla þá fjölbreyttu sköpun og frumkvöðlahugsun sem…Lesa meira

true

Uppselt á Þorsteinsmót í Logalandi

Á morgun laugardag verður árlegt Þorsteinsmót í bridds spilað í félagsheimilinu Logalandi í Borgarfirði. Mótið er minningarmót um Þorstein Pétursson frá Hömrum, sem beitti sér fyrir uppgangi briddsíþróttarinnar í héraði. Mótið er tvímenningur og spiluð 44 spil. Sem fyrr verður mótið eitt fjölmennasta utan höfuðborgarsvæðisins. Nú bregður svo við að uppselt er á Þorsteinsmót, eða…Lesa meira

true

Gera ráð fyrir rekstrarafgangi í Borgarbyggð

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær var fjárhagsáætlun næsta árs sem og þriggja ára áætlun lögð fram til fyrri umræðu. Stefnt er að síðari umræðu um áætlunina 10. desember. Fundargerð og fjárhagsáætlun hefur ekki verið birt á heimasíðu sveitarfélagins, en Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri lýsir henni svo í færslu á samfélagsmiðlum: „Áætlunin gerir ráð fyrir…Lesa meira

true

Viðvaranir vegna veðurs taka gildi í kvöld

Djúp lægð norður af landinu mun næsta sólarhringinn hafa áhrif um mest allt land. Versta veðrinu er spáð á Norðurlandi þar sem appelsínugular viðvaranir eru vegna hvassviðris og snjókomu frá því um miðjan dag og fram á nóttina. Þar verður ekkert ferðaveður. Á spásvæðinu Faxaflóa verður norðvestan 13-20 m/s og snjókoma eða skafrenningur, einkum á…Lesa meira

true

Umfangmikil bilun hjá Microsoft

Notendur þjónustuforrita Microsoft víða um heim hafa síðan í gær fundið fyrir tengingarvandamálum. Fram kemur í tilkynningu að fyrirtækið vinnur að því að leysa vandann. Þetta veldur því til dæmis að fólk getur ekki tengst Outlook, Teams og fleiri afar algengum forritum. Microsoft segir í tilkynningu að erfiðara hafi reynst að laga truflanirnar en gert…Lesa meira

true

Boða íbúafund um fjárhagsáætlun

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar boðar til opins íbúafundar í Félagsheimilinu Klifi þriðjudaginn 17. nóvember kl. 20. Þar verður fjallað um vinnu við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2027 og helstu áherslur við ráðstöfun fjármuna. Einnig verður farið yfir fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum bæjarins og stöðu þeirra verkefna sem þegar eru í undirbúningi. Markmiðið er að eiga opið samtal…Lesa meira

true

Bæjarfulltrúar bjóða í morgunkaffi og spjall

Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri bjóða íbúum til óformlegs spjalls yfir kaffibolla í Sögumiðstöðinni laugardaginn 14. nóvember kl. 10:30–12:30. Morgunkaffið verður haldið mánaðarlega og er ætlað að skapa vettvang þar sem íbúar geta rætt málefni bæjarins, komið á framfæri ábendingum og beint spurningum til kjörinna fulltrúa. Engin formleg dagskrá verður og er öllum velkomið að líta við…Lesa meira

true

Bók um aldarafmæli Landhelgisgæslu Íslands

Nýlega kom út bókin Svipmyndir úr 100 ára sögu – Landhelgisgæsla Íslands 1926-2026. Höfundar hennar eru Guðjón Arngrímsson og Guðni Einarsson. Landhelgisgæslan hefur nú í heila öld staðið vörð um öryggi og varnir lands og þjóðar. Hér verður gripið niður í bókina: Herskip koma Fyrst eftir útfærsluna í 50 sjómílur árið 1972 voru Bretar reyndar…Lesa meira

true

Bjarni Kristinn tekur við nýjum verkefnum

Breytingar verða á skipulagi Slökkviliðs Borgarbyggðar næsta vor þegar staða aðstoðarslökkviliðsstjóra verður lögð niður og aukin áhersla lögð á eldvarnaeftirlit og forvarnir. Á þjónustusíðu sveitarfélagsins segir að Bjarni Kr. Þorsteinsson, sem starfað hefur hjá slökkviliðinu frá árinu 1977, lætur þá af störfum sem aðstoðarslökkviliðsstjóri og tekur við nýjum verkefnum hjá sveitarfélaginu. Byggðarráð samþykkti breytingarnar 15.…Lesa meira

true

Skóflustungur teknar að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal

Fyrstu skóflustungur að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal voru teknar í dag. Þar með eru framkvæmdir formlega hafnar við nýjan heimavöll íslenskra landsliða í innanhússíþróttum, mannvirki sem stenst alþjóðlegar kröfur um keppnisaðstöðu. Þjóðarhöllin er afrakstur samstarfs ríkis, Reykjavíkurborgar og íþróttahreyfingarinnar. Hún verður um 17.700 fermetrar, með 8.600 sætum, og getur tekið allt að 12.000 gesti á…Lesa meira