
Uppselt á Þorsteinsmót í Logalandi
Á morgun laugardag verður árlegt Þorsteinsmót í bridds spilað í félagsheimilinu Logalandi í Borgarfirði. Mótið er minningarmót um Þorstein Pétursson frá Hömrum, sem beitti sér fyrir uppgangi briddsíþróttarinnar í héraði. Mótið er tvímenningur og spiluð 44 spil.