Bæjarfulltrúar bjóða í morgunkaffi og spjall

Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri bjóða íbúum til óformlegs spjalls yfir kaffibolla í Sögumiðstöðinni laugardaginn 14. nóvember kl. 10:30–12:30. Morgunkaffið verður haldið mánaðarlega og er ætlað að skapa vettvang þar sem íbúar geta rætt málefni bæjarins, komið á framfæri ábendingum og beint spurningum til kjörinna fulltrúa. Engin formleg dagskrá verður og er öllum velkomið að líta við þegar þeim hentar.