Fjölbreytt nýsköpunarverkefni á lokaviðburði Startup Landsins

Lokaviðburður Startup Landsins fór fram á Selfossi síðastliðinn föstudag. Þar stigu fulltrúar tólf teyma frá sjö landshlutum á svið og kynntu verkefni sem þeir hafa unnið að í viðskiptahraðli landsbyggðarinnar. Undanfarnar vikur hafa þátttakendur þróað hugmyndir sínar, skerpt á viðskiptamódelum, eflt færni sína og byggt upp tengslanet. „Verkefnin endurspegla þá fjölbreyttu sköpun og frumkvöðlahugsun sem býr víðs vegar um landið. Þau spanna meðal annars framleiðslu á lífrænum áburði úr íslenskri ull, bjórgerð úr íslensku byggi, fjarheilbrigðisþjónustu, hárkollugerð og sniglarækt,“ segir í tilkynningu.