
Viðvaranir vegna veðurs taka gildi í kvöld
Djúp lægð norður af landinu mun næsta sólarhringinn hafa áhrif um mest allt land. Versta veðrinu er spáð á Norðurlandi þar sem appelsínugular viðvaranir eru vegna hvassviðris og snjókomu frá því um miðjan dag og fram á nóttina. Þar verður ekkert ferðaveður.
Á spásvæðinu Faxaflóa verður norðvestan 13-20 m/s og snjókoma eða skafrenningur, einkum á fjallvegum norðantil. Takmarkað eða lítið skyggni og varasöm færð. Gul viðvörun er í gildi frá klukkan 20 í kvöld og til miðnættis. Á spásvæðinu Breiðafirði er sömuleiðis gul viðvörun frá klukkan 18 í kvöld til klukkan 01 í nótt. Þar verður norðan 15-23 m/s og snjókoma eða skafrenningur, einkum á fjallvegum. Víða lítið skyggni og erfið færð.
Á vegum á Vesturlandi er nú víða éljagangur og hálka, en búið er að hálkuverja helstu leiðir. Ökumenn eru hvattir til að fylgjast með upplýsingum um færð og veður á vef Veðurstofunnar og umferdin.is