
Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri og Bjarni Kr. Þorsteinsson.
Bjarni Kristinn tekur við nýjum verkefnum
Breytingar verða á skipulagi Slökkviliðs Borgarbyggðar næsta vor þegar staða aðstoðarslökkviliðsstjóra verður lögð niður og aukin áhersla lögð á eldvarnaeftirlit og forvarnir. Á þjónustusíðu sveitarfélagsins segir að Bjarni Kr. Þorsteinsson, sem starfað hefur hjá slökkviliðinu frá árinu 1977, lætur þá af störfum sem aðstoðarslökkviliðsstjóri og tekur við nýjum verkefnum hjá sveitarfélaginu.