
Fyrstu skóflustungurnar teknar að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal. Ljósm. Þráinn Kolbeinsson
Skóflustungur teknar að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal
Fyrstu skóflustungur að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal voru teknar í dag. Þar með eru framkvæmdir formlega hafnar við nýjan heimavöll íslenskra landsliða í innanhússíþróttum, mannvirki sem stenst alþjóðlegar kröfur um keppnisaðstöðu. Þjóðarhöllin er afrakstur samstarfs ríkis, Reykjavíkurborgar og íþróttahreyfingarinnar. Hún verður um 17.700 fermetrar, með 8.600 sætum, og getur tekið allt að 12.000 gesti á viðburðum. Stefnt er að því að Þjóðarhöllin verði tilbúin í janúar 2030, í tæka tíð fyrir heimsmeistaramót karla í handknattleik 2031 sem Ísland heldur ásamt Danmörku og Noregi.