
Umfangmikil bilun hjá Microsoft
Notendur þjónustuforrita Microsoft víða um heim hafa síðan í gær fundið fyrir tengingarvandamálum. Fram kemur í tilkynningu að fyrirtækið vinnur að því að leysa vandann. Þetta veldur því til dæmis að fólk getur ekki tengst Outlook, Teams og fleiri afar algengum forritum. Microsoft segir í tilkynningu að erfiðara hafi reynst að laga truflanirnar en gert hafi verið ráð fyrir. Microsoft tekur það fram að tengingarvandamálið sé ekki til komið vegna tölvuárásar á kerfi fyrirtækisins heldur megi rekja truflanirnar til aukins álags á innviði þess. Svo virðist sem margir netþjónar hafi óvænt misst tenginguna og því hafi aukinni umferð verið beint á aðra netþjóna og það hafi valdið skyndilegu álagi. Bilunin nær til notenda í a.m.k. 74 löndum.
Því má við þetta bæta að Skessuhorn byggir netpóstssamskipti sín á Outlook kerfi Microsoft og geta starfsmenn ekki í augnablikinu tengst tölvupósti. Ef um áríðandi tilkynningar er að ræða, sem birta þarf á vef okkar, er bent á síma 894-8998.