Fréttir

true

Landsmenn hvattir til sundiðkunar í nóvember

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Sundsamband Íslands standa fyrir heilsu- og hvatningarátakinu „Syndum allan nóvember“. Markmiðið er að hvetja landsmenn á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og vekja athygli á sundi sem góðri og aðgengilegri líkamsrækt. Allir eru hvattir til þátttöku, óháð aldri eða sundgetu, enda skiptir hver syntur metri máli. Þátttakendur skrá vegalengdir…Lesa meira

true

Grundarfjörður verður bókmenntaborg í nóvember

Fimmtudaginn 5. nóvember ætlar leshópurinn Köttur úti í mýri að hleypa af stokkunum lítilli bókahátíð sem stendur yfir út mánuðinn. Leshópurinn fagnar tíu ára afmæli um þessar mundir og ætlar að fagna áfanganum með bókmenntaviðburðum í nóvember. Opnunarviðburður hátíðarinnar er ekki af verri endanum en hinn lífsglaði og káti Legó ætlar að bjóða yngstu grunnskólabörnunum…Lesa meira

true

Bronsverðlaun hjá Dansi án hindrana á Special Olympics

Danshópurinn Dans án hindrana, sem starfar á vegum Danslistarskóla JSB, vann til bronsverðlauna á alþjóðlegu dansmóti Special Olympics í Ahrensburg í Þýskalandi um síðustu mánaðamót. Þetta var í fyrsta sinn sem Ísland sendir danshóp til keppni á Special Olympics, en alls tóku 120 keppendur þátt frá Þýskalandi, Ítalíu, Austurríki og Íslandi. Í íslenska hópnum voru…Lesa meira

true

Gestir frá Lettlandi kynntu sér starfsemi SSV og þróun Vesturlands

Nýverið tóku Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi á móti hópi gesta frá sveitarfélaginu Jelgava í Lettlandi sem fóru í kynnisferð um Vesturland. Markmið heimsóknarinnar var að fræðast um starfsemi SSV, uppbyggingu stoðkerfis atvinnuþróunar á landsvísu og hvernig unnið er að byggðaþróun, nýsköpun, ferðaþjónustu og sóknaráætlun á Vesturlandi. Heimsóknin hófst á skrifstofu SSV í Borgarnesi þar sem…Lesa meira

true

Endurnýjuðu brúargólf með hástyrkleikasteypu

Notkun slitþolinnar hástyrkleikasteypu við endurnýjun brúargólfa getur lengt líftíma brúa og dregið úr viðhaldskostnaði. Þessi aðferð var á dögunum notuð við endurbætur á brúnni yfir Gljúfurá í Borgarfirði. Áður en nýtt slitlag var lagt var brúargólfið fræst og skemmd steypa fjarlægð, víða niður að járnbendingu. Vilhjálmur Arnórsson yfirverkstjóri vinnuflokks Vegagerðarinnar á Hvammstanga stýrði framkvæmdinni, Gösli…Lesa meira

true

Heima Skaga hátíðin gekk að vonum

Tónlistarhátíðin Heima-Skagi fór fram í sjötta sinn sl. laugardag á Akranesi. „Það er skemmst frá því að segja að þetta heppnaðist afskaplega vel. 17 listamenn/hljómsveitir – hátt í 90 manns, spiluðu og sungu – sex tíma dagskrá og fullt af glöðum gestum sem nutu tónlistar í miðbænum og Niðurskaganum á Akranesi og meira að segja…Lesa meira

true

Þrír vestlenskir íþróttamenn hljóta starfslaun afreksíþróttafólks

Úthlutað hefur verið starfslaunum afreksíþróttafólks ÍSÍ fyrir tímabilið 1. nóvember 2026 til ársloka 2027. Markmiðið er að gera íþróttafólkinu kleift að helga sig íþrótt sinni og keppa við þau bestu á alþjóðavettvangi án þess að þurfa að velja á milli íþróttarinnar og afkomunnar. Úthlutað er í þremur flokkum; A, B og C. Fyrir A starfslaun…Lesa meira

true

Bólusett í apótekum

Nýr samningur Sjúkratrygginga við apótek um lyfjafræðilega þjónustu markar tímamót í aðgengi almennings að heilbrigðisþjónustu. Nú verður hægt að fá bólusetningu við inflúensu í apótekum, til viðbótar við þá þjónustu sem veitt er á heilsugæslustöðvum. Með þessu fyrirkomulagi verður fólki auðveldað að nálgast bólusetningar í sínu nærumhverfi. „Markmiðið er að bæta aðgengi að þjónustu, fjölga…Lesa meira

true

Ævintýri frá Akranesi skapar ný tækifæri fyrir börn í Malaví

„Getur tæknin hjálpað okkur að leggja símann frá okkur og beint athyglinni að umhverfinu og samveru með öðrum?“ Þessari spurningu leitast Anna Lára Steindal á Akranesi við að svara með nýju verkefni á vegum HeimVeru, sem ber heitið „Ævintýri fyrir öll börn.“ Verkefnið sameinar hljóðsögur, útivist, leiki og ímyndunarafl og er um leið fjáröflun til…Lesa meira

true

Fimmföld eftirspurn eftir mjólkurkvóta

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn í dag. Atvinnuvegaráðuneytinu bárust 59 gild tilboð um kaup en sölutilboð voru einungis fjögur. Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 445 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 300 kr./ltr. Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði…Lesa meira