
Stúlkurnar brosandi með bronsverðlaunin. Frá vinstri: Guðlaug Esther Hlöðversdóttir, Katrín Líf Vignisdóttir, Bergdís Inga Tong Guðjónsdóttir, Klara Lyngdal Kjartansdóttir og Katrín Lilja Harðardóttir.
Bronsverðlaun hjá Dansi án hindrana á Special Olympics
Danshópurinn Dans án hindrana, sem starfar á vegum Danslistarskóla JSB, vann til bronsverðlauna á alþjóðlegu dansmóti Special Olympics í Ahrensburg í Þýskalandi um síðustu mánaðamót. Þetta var í fyrsta sinn sem Ísland sendir danshóp til keppni á Special Olympics, en alls tóku 120 keppendur þátt frá Þýskalandi, Ítalíu, Austurríki og Íslandi.