
Guðrún Lilja Magnúsdóttir á skólabókasafninu er í forsvari fyrir hátíðina. Ljósm. tfk
Grundarfjörður verður bókmenntaborg í nóvember
Fimmtudaginn 5. nóvember ætlar leshópurinn Köttur úti í mýri að hleypa af stokkunum lítilli bókahátíð sem stendur yfir út mánuðinn. Leshópurinn fagnar tíu ára afmæli um þessar mundir og ætlar að fagna áfanganum með bókmenntaviðburðum í nóvember.