Hluti þeirra kvenna sem taka þátt í verkefninu. Ljósmyndir: aðsendar

Ævintýri frá Akranesi skapar ný tækifæri fyrir börn í Malaví

„Getur tæknin hjálpað okkur að leggja símann frá okkur og beint athyglinni að umhverfinu og samveru með öðrum?“ Þessari spurningu leitast Anna Lára Steindal á Akranesi við að svara með nýju verkefni á vegum HeimVeru, sem ber heitið „Ævintýri fyrir öll börn.“ Verkefnið sameinar hljóðsögur, útivist, leiki og ímyndunarafl og er um leið fjáröflun til stuðnings fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra í Malaví.