Fréttir

true

Snæfell tapaði stórt gegn Haukum á Ásvöllum

Snæfell tapaði fyrir Haukum, 119:91, í Bæjarins Beztu deild karla í körfuknattleik á Ásvöllum í Hafnarfirði í gærkvöldi. Heimamenn höfðu yfirhöndina frá upphafi og reyndust Snæfellingum erfiðir viðureignar, ekki síst vegna góðrar hittni fyrir utan þriggja stiga línuna. Haukar byrjuðu leikinn af krafti og leiddu 28:17 eftir fyrsta leikhluta. Þeir bættu við forskotið í öðrum…Lesa meira

true

Skallagrímskonur voru ofurliði bornar

Skallagrímur tapaði fyrir Breiðabliki, 49:80, í Bæjarins Beztu deild kvenna í körfuknattleik í Borgarnesi í gær. Gestirnir úr Kópavogi höfðu yfirhöndina frá upphafi og náðu Borgnesingar aldrei að ógna forystu þeirra að ráði. Breiðablik byrjaði leikinn af krafti og leiddi 25:14 eftir fyrsta leikhluta. Gestirnir bættu enn við forskotið í öðrum leikhluta, sem fór 23:13,…Lesa meira

true

ÍA tapaði sínum fyrsta leik í Bæjarins Bestu

ÍA tapaði fyrir Breiðabliki, 96:77, í Bæjarins Beztu deild karla í körfuknattleik í Smáranum í Kópavogi á föstudaginn. Skagamenn héldu vel í við heimamenn í upphafi en slakur annar leikhluti reyndist þeim dýrkeyptur. Leikurinn var jafn framan af og leiddu Blikar með aðeins tveimur stigum, 26:24, eftir fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta tóku heimamenn hins…Lesa meira

true

Skallagrímur átti undir högg að sækja gegn Þórsurum

Skallagrímur beið stóran ósigur gegn Þór Þorlákshöfn í Bæjarins Beztu deild karla í körfuknattleik þegar liðin mættust á heimavelli Þórs í Þorlákshöfn í gær. Heimamenn höfðu mikla yfirburði í sóknarleiknum og fögnuðu að lokum öruggum 30 stiga sigri, 120:90. Þórsarar voru mun hittnari en Borgnesingar og nýttu skotfæri sín vel. Þeir hittu úr 61% skota…Lesa meira

true

Nýjar símareglur breyta engu fyrir nemendur í Snæfellbæ

Í tilefni þess að reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskólum og á frístundaheimilum tók gildi 1. september síðastliðinn efndi nemendaráð Grunnskóla Snæfellsbæjar til Nemendaþings í morgun. Tæplega hundrað nemendur úr 7.-10. bekk komu saman og ræddu ýmis mál í hópum. Reglugerð ráðuneytisins var borin saman við símareglur í GSnb sem hafa…Lesa meira

true

Borgarbyggð alfarið á móti að því að vindorkuver á Grjóthálsi fari í biðflokk

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var kynnt væntanleg umsögn sveitarfélagsins við tillögu um skýrslu verkefnisstjórnar um verndar- og orkunýtingaráætlun vindorkuvera, þar sem fjallað er um flokkun sjö vindorkuverkefna í rammaáætlun. Í þeirri áætlun er vindorkuver Alviðru á Grjóthálsi í Borgarbyggð sett í biðflokk. Borgarbyggð mótmæli þeirri ákvörðun harðlega og vill að vindorkugarðurinn verður settur…Lesa meira

true

Styrkja stækkun frisbígolfvallar í Borgarnesi

Verkefnið Frisbígolf í Borgarnesi hlaut nýverið Samfélagsstyrk Krónunnar. „Með styrknum vill Krónan styðja við uppbyggingu fjölbreyttra tækifæra til hreyfingar og útivistar í nærsamfélaginu,“ segir í tilkynningu. Samfélagsstyrkur Krónunnar er veittur árlega til verkefna sem stuðla að jákvæðum áhrifum í nærsamfélögum, meðal annars á sviði lýðheilsu, umhverfismála og samfélagsuppbyggingar. Andri Már Jónsson, meðstjórnandi í Hollvinasamtökum Borgarness,…Lesa meira

true

Fá gjafabréf í heimabyggð

Borgarbyggð hyggst færa rúmlega 350 starfsmönnum sínum gjafabréf að andvirði 15.000 króna í jólagjöf og leitar nú að verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem vilja taka þátt í verkefninu. Með þessu fyrirkomulagi er jafnframt stuðlað að aukinni verslun og viðskiptum innan sveitarfélagsins. Gjafabréfin verða afhent í byrjun desember og gilda frá 14. desember til 31.…Lesa meira

true

Fræðsla um seiglu og sjálfstraust barna

Forvarnarteymi Borgarbyggðar býður foreldrum og öðrum áhugasömum til fræðslufundar um hvernig styrkja megi seiglu, þrautseigju og sjálfstraust barna. Fundurinn verður haldinn í Hjálmakletti í Borgarnesi mánudaginn 16. nóvember kl. 17–19. Fræðslan ber yfirskriftina Ólseigir krakkar – Að efla þolgæði og sjálfstraust barna og er einkum ætluð foreldrum barna á leik- og grunnskólaaldri. Fjallað verður um…Lesa meira

true

Verulegur niðurskurður ógnar starfi LbhÍ

Samkvæmt nýjum tillögum um fjárframlög fyrir árið 2027 stefnir í verulegan niðurskurð á ríkisfjármögnun Landbúnaðarháskóla Íslands, þar sem framlag háskólaráðuneytisins mun aðeins standa undir um 45% af áætluðum rekstrarkostnaði í stað þess að vera um tveir þriðju hlutar eins og undanfarin ár. Það þýðir að skólinn fær einungis um 75% af því rekstrarframlagi sem gert…Lesa meira