Verulegur niðurskurður ógnar starfi LbhÍ

Samkvæmt nýjum tillögum um fjárframlög fyrir árið 2027 stefnir í verulegan niðurskurð á ríkisfjármögnun Landbúnaðarháskóla Íslands, þar sem framlag háskólaráðuneytisins mun aðeins standa undir um 45% af áætluðum rekstrarkostnaði í stað þess að vera um tveir þriðju hlutar eins og undanfarin ár. Það þýðir að skólinn fær einungis um 75% af því rekstrarframlagi sem gert hafði verið ráð fyrir og vantar því 25% upp á til að mæta áætlunum sínum.